Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 65
AÐALFUNDUR SSS
Föstudaginn 8. og laugardaginn 9.
nóvember 1985 var aðalfundur S.S.S.
haldinn í félagsheimilinu í Höfnum.
Helstu mál á dagskrá voru eftirtalin:
FÖSTUDAGINN
8. NÓVEMBER:
1. Hitaveita Suðurnesja á tíma-
mótum:
Frummælendur: Ingólfur Aðal-
steinsson forstjóri H.S. og Júlíus
Jónsson, framkv.stj. íjármálasviðs
H.S.
Að umræðum loknum var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
„Aðalfundur S.S.S. haldinn í Höfn-
um 8. og 9. nóvember 1985 fagnar
þeim þýðingarmikla áfanga sem náðst
hefur í orkumálum með sameiningu
rafveitnanna á Suðurnesjum og Hita-
veitu Suðurnesja ásamt yfirtöku hita-
veitunnar á eignum Rafmagnsveitna
ríkisins á orkuveitusvæðinu.
Þessi sameining hefur þegar leitt til
lækkunar raforkuverðs, sem skapar
aukna möguleika á traustari atvinnu-
uppbyggingu og betra mannlífi.
Aðalfundurinn hvetur eindregið til
þess, að sem fyrst verði hafist handa
við undirbúning frekari raforkufram-
leiðslu með nýtingu afgangsorku til
iðnaðar og fiskeldis fyrir augum.“
2. Drög að frumvarpi um skóla-
kostnað framhaldsskóla:
Frummælandi Hjálmar Árnason,
skólameistari Fjölbrautaskóla Suður-
nesja.
Að umræðum loknum var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga
á Suðumesjum, haldinn í Höfnum 8.
og 9. nóvember 1985 tekur heils hugar
undir þær hugmyndir er fram koma í
„Frumvarpi til laga um skólakostnað
í framhaldsskólum".
Fundurinn telur að með frumvarp-
inu sé leitast við að jafna aðstöðu ein-
stakra landsfjórðunga og framhalds-
skóla til að halda uppi eðlilegu skóla-
starfi.
LAUGARDAGINN
9. NÓVEMBER:
1. Hvað er að gerast í atvinnumál-
um á Suðurnesjum?
Frummælendur voru:
a) Guðmundur Gestsson, form. at-
vinnumálanefndar Suðumesja
b) Jón E. Unndórsson, framkv.stj.
Iðnþróunarfélags Suðurnesja.
c) Ólafur B. Olafsson, forstjóri Mið-
ness h.f„ Sandgerði.
d) Jón Þórðarson, framleiðslustjóri
Islandslax h.f. í Grindavík.
Að umræðum loknum voru sam-
þykktar eftirfarandi ályktanir:
„Aðalfundur S.S.S. haldinn í Höfn-
um 8. og 9. nóvember 1985 fagnar
þeirri ákvörðun að áfram skuli haldið
tilraunum með sjóefnavinnslu á
Reykjanesi meö þvi að ljúka 8000
tonna áfanga Sjóefnavinnslunnar h.f.
og með fyrirhugaðri 1560 tonna kol-
sýruverksmiðju.
Aðalfundurinn hvetur til áframhald-
andi rannsókna á hagnýtingu varma-
orkunnar á Suðurnesjum."
,,Enn, sem frá upphafi byggðar á ís-
landi, er sjávarútvegur meginundir-
staða byggðar á Suðurnesjum og í
nokkrum byggðum er naumast um
aðra atvinnustarlsemi að ræða.
Slök afkoma atvinnugreinarinnar
ásamt pólitískri stýringu á fjármagni í
Áki Gránz tók við formcnnsku af
Þórami St. Sigurðssyni.
útgerð og fiskvinnslu hefur valdið því,
að íbúar á Suðurnesjum mega horfa á
flutning fiskiskipaflotans til annarra
landshluta í þeim mæli, að afkomu-
brestur fjölda heimila blasir nú við.
Hvetur fundurinn stjórnvöld til að
endurmeta afstöðu sína til sjávarút-
vegsmála og verði framhald á póli-
tískri íhlutun, að minnast þess þá, að
enn bjóða Suðurnes uppá hagstæð
rekstrarskilyrði og meiri von um arð-
semi í sjávarútvegi, en víða þar sem
verið er að byggja upp ný og efla önnur
útgerðarsvæði á kostnað heildarafla
allra landsmanna.
Sjómenn á Suöurnesjum telja full-
víst að auka megi rækjualla Suður-
nesjamanna með aukinni leit, en til
þessa hefur Hafrannsóknarstofnun
lítt sinnt óskum þeirra. Úrbætur á
þessu og frelsi smábáta og þeirra, sem
stunda línuveiðar, til veiða án
skömmtunar yrði strax til bóta.
Fundurinn varar alvarlega við því
ástandi, sem nú blasir við í sjávarút-
vegi á Suðurnesjum og hvetur til þess
að stjórnvöld endurskoði afstöðu sína
tafarlaust."
„1 framhaldi af samþykkt ályktunar
um sjávarútvegsmál á Suðurnesjum,
skorar aðalfundur S.S.S. á þingmenn
Reykjaneskjördæmis, að þeir í sam-
einingu ásamt hagsmunaaðilum í
sjávarútvegi og sveitarstjórnarmönn-
um hér á Suðurnesjum beiti sér fyrir
því, að hraðað verði svo sem frekast er
kostur þeirri úttekt á stöðu þessarar
undirstöðuatvinnugreinar á Suður-
nesjum, sem þegar hefur verið
ákveðið að vinna, með það í huga aö
róttæk enduruppbygging geti átt sér
stað á allranæstu árum og jafnframt
að rekstrargrundvöllur útgerðar og
fiskvinnslu verði tryggður.
Stjórn S.S.S. verði falið að fylgja
þessari áskorun fast eftir.“
„Aðalfundur Sambands sveitarfél-
aga á Suðurnesjum, haldinn í Höfn-
um 8. og 9. nóv. 1985, vekur athygli
atvinnurekenda á hinum miklu
möguleikum, sem Suöurnes hafa upp
á að bjóöa til margháttaðrar atvinnu-
starfsemi.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesj-
um, sveitarlélögin á Suðurnesjum og
Iðnþróunarfélag Suðumesja bjóða öll-
um þeim, sem áhuga hai'a á, að kynna
sér þessa margvíslegu möguleika."
2. Málefni aldraðra (á
Suðurnesjum) í nútíð og
framtíð:
Frummælendur voru:
a) Páll Axelsson, form. stjórnar
dvalarheimila aldraðra, Suður-
nesjum.
b) Stefán Tómasson, form. öldrun-
arráðs í Grindavík.
c) Jón A. Jóhannsson, yfirlæknir,
form. þjónustuhóps aldaöra á Suður-
nesjum.
Að loknum umræðum var eftirlar-
andi ályktun samþykkt:
Á haustfundi Sparisjóðsins í
Keflavík 15. nóv. sl. kom fram í
ræðum þeirra Jóns H. Jónssonar
stjórnarformanns og Tómasar
Tómassonar sparisjóðsstjóra, að á
þessu ári hafi Sparisjóðurinn í
fyrsta sinn farið yfir milljarð í
innistæðufé. Innistæðuaukning
15. nóv. var 41% miðað við inn-
stæður í árslok 1984 og útlána-
aukning var á sama tíma 37%.
TYompinnlán sparisjóðanna var
heppilegt svar við vaxtastríði
bankanna og hefur gefið góða
raun.
Hlutfall vanskila fer vaxandi.
Stóraukning er á notkun Visa-
korta en vanskil eru þar einnig
nokkur. Greiðsluerfiðleikar eru
miklir hjá fólki, þess vegna mikið
um uppboð og skuldbreytingar.
Vandræði húsbyggjenda og veru-
„Aðalfundur Sambands sveitarfél-
aga á Suðumesjum haldinn í Höíhum
8. og 9. nóvember bendir á að meö
viöbyggingu við Garðvang, dvalar-
heimili aldraðra í Garði, sem tekin var
í notkun á þessu ári, var aðeins bætt
úr brýnustu þörf, en enn er langur
biðlisti aldraðs fólks, sem þarfnast
vistunar. Sum sveitarfélögin hafa enn-
fremur byggt og stuðlað að byggingu
leigu- og söluíbúða fyrir aldraða, auk
þess sem þau hafa aukið þjónustu við
þá aldraða, sem búa í eigin húsnæði,
en betur má ef duga skal.
A næstu árum er fyrirsjáanleg aukin
þörf á vistunarrými fyrir aldraða á
Suðurnesjum, sem verður aö l'ull-
nægja. Aðalfundurinn telur að þessari
auknu þörf verði best og fljótast mætt
með því að ljúka sem í'yrst legudeild
(D-álmu) við Sjúkrahús Keflavfkur-
læknishéraðs. Aðalfundurinn hvetur
til þess að nú þegar verði útvegað fjár-
magn til þeirrar byggingar.“
3. Sameining sveitarfélaga
á Suðurnesjum:
Frummælendur voru Reynir Krist-
insson, rekstrarráðgjafi, Hagvangi og
Magnús Guðjónsson, framkv.stj.
Samb. ísl. sveitarfélaga.
Sveitarstjómarmenn skiptast á að
veita stjóm S.S.S. formennsku og eru
formenn eitt ár í senn. Fráfarandi for-
maður er Þórarinn St. Sigurdsson,
sveitarstjóri í Hölnum en Áki Gránz,
forseti bæjarstjórnar Njarövíkur, tók
við formennskunni.
Eiríkur Alexandersson, frkv.stjóri
legir rekstrarerfiöleikttr llestra
fyrirtækja leiða til þess að gjald-
þrotum íjölgar, einnig fjölgar upp-
boðum á fasteignum.
Nánast engin fjáríesting hefur
verið hjá Sparisjóðnum á þessu
ári.
I nýjum lögum um sparisjóði,
sem taka gildi 1. janúar 1986, eru
þau nýmæli athyglisverðust að
gert er ráð fyrir að sparisjóðirnir
geti stofnað eigin lánastofnun —
eða banka, sem nokkurskonar
miðstöð i'yrir viðskipti sparisjóð-
anna, og unnið verður að því á
næstu mánuðum.
Sparisjóðirnir eru nú með rúnt
15% af öllu innlánsfé lands-
rnanna. Þeir eru skoðaðir sem
heimabyggðastofnanir og njóta
góðs af þeirri skoðun fólks, eink-
um úti á landsbyggðinni. J.T.
HAUSTFUNDUR
SPARISJÓÐSINS
f ki:fuavík
FAXI 377