Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 67

Faxi - 01.12.1985, Síða 67
SYNING sem miðaði að orkusparaaði Jónas Elíasson, pröfessor, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra flytur ávarp. Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra flutti aðalrœðu við setningu sýningarinnar. Tii hliðar við hann stendur Karl ÓmarJónsson verk- frœðingur formaður verkefnanefndarinnar. Hann stjórnaði opnunarathöfn- inni. Alveg fram á síðustu áratugi, öf- unduðum við íslendingar þær þjóðir er bjuggu við olíulindir og jafnvel þær þjóðir er áttu auðugar kolanámur. Olía og kol voru þeir orkugjafar sem við þráðum og þurftum svo mjög á að halda og þurfum raunar enn í ríkum mæli til margra nota. Á stríðstímum og á uppbygging- arárum eftir eyðileggingu stríðs- ára er þessi vara mjög eftirsótt og verðlag því svimandi hátt. Okur- verð á þessum aflgjöfum var eitt af því er átti hvað mestan þátt í að brjóta niður íslenskt efnahagslíf ásamt sundurþykkra stjórnmála- afla, er áttu leiðir til allra átta ef auga mátti festa á atkvæði. Á síðustu áratugum hafa þó ver- ið unnin stórvirki í nýtingu inn- lendra orkugjafa — úr fallvötnum og jarðhitasvæðum, sem er og á eftir að verða í ríkari mæli til heilla fyrir þjóðina. En þrátt fyrir það og einnig vegna þess að fyrr- greinda aflgjafa verðum við enn að flytja til landsins, og eyða í það dýrmætum gjaldeyri, er áríðandi að gæta vel að hversu vel orkan er nýtt og þá fyrst og fremst sú orka er við flytjum inn. Það var því í ársbyrjun 1984 að þáverandi iðn- aðarráðherra Sverrir Hermanns- son og félagsmálaráðherra Alex- ander Stefánsson, skipuðu þriggja manna verkefnisstjórn til að hafa forgang um sérstakt átak sem miðaði að orkusparnaði og bættri orkunýtingu við upphitun húsnæðis. Jafnframt var þeim fal- ið að vinna að því að olíukynt hús verði hið bráðasta búin hitunar- tækjum sem nýti innlenda orku- gjafa alls staðar er því verður við komið. í Verkefnisstjórn voru skipaðir þessir menn: Karl Ómar Jónsson, verkfræðingur, formaður. Guðni Jóhannsson, verkfræðingur, og Jóhann Einvarðsson, aðstoðar- maður félagsmálaráðherra. Þeir hafa byggt upp orkusparn- aðarsýningu sem þeir hafa ferðast með um allt land. Sjöunda nóv. sl. var sýning þessi opnuð í húsa- kynnum Hitaveitu Suðurnesja. Jónas Elíasson, prófessor, að- stoðarmaður iðnaðarráðherra, setti sýninguna í umboði ráð- herra, með stuttri ræðu. Hann skírskotaði einkum til þess ágæta árangurs sem náðst hefur fyrir Suðurnesjamenn með Hitaveitu Suðurnesja og nýtingar háhita- svæðisins við Svartsengi, en það væri ekki aðeins til hagsbóta fyrir Suðurnesjamenn að nýta jarðhit- ann eins og þar væri gert, heldur nyti allt þjóðarbúið góðs af slílai framtaki. Næst talaði Jöhann Einvarðs- son. Hann sagði m.a. „Ákveðið var að hafa sem nánast samstarf í þessum efnum við samtök sveit- arfélaga og sveitarfélög, bygging- arfulltrúa, iðnaðarmenn, orku- veitur, ráðgjafarfyrirtæki, selj- endur og framleiðendur búnaðar sem nýttist í þessu sambandi o.fl. Til að styrkja þessi tengsl var skipuð sérstök ráðgjafanefnd og auðveldað þannig samstarf og samskipti milli allra ofangreindra aðila. I ráðgjafanefndinni sitja fulltrúar frá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, Orkustofn- un, Húsnæðisstofnun ríkisins, Sambandi ísl. sveitarfélaga, Sam- bandi ísl. rafveitna og Sambandi ísl. hitaveitna. Á árinu 1984 var unnið mikið undirbúningsstarf jafnhliða því sem hafln var skipuleg ráðgjöf og lánafyrirgreiðsla fyrir húseigend- ur. Sérstakir skoðunarmenn víðs vegar af landinu hafa fengið menntun og þjálfun í skoðun húsa og gerð áætlana um framkvæmdir til orkusparnaðar og notast þeir við tölvuforrit sem sérstaklega hefur verð unnið í þessu skyni. Hús eru valin til skoðunar annars vegar m.t.t. orkunotkunar oghins vegar samkvæmt sérstakri um- sókn húseigenda. Þegar skoðun hel'ur verið leyfð fer skounarmaður síðan á staðinn og gerir gagngera úttekt á húsinu m.t.t. ástands einangrunar og orkunýtingar. í því felst m.a. að flatarmál og rúmmál eru mæld, ástand einangrunar og þéttinga kannað, gerð glugga og ásigkomu- lagi lýst og hitakerfið kannað, sér- staklega m.t.t. stýringa. Með við- tölum við íbúana er síðan reynt að leggja mat á venjur þeirra m.t.t. innihita og loftræstingar. Skoðan- ir á Suðurnesjum annast Brynj- ólfur Guðmundsson hjá Verk- fræðistofu Suðurnesja, Kefla- vík.“ Síðan gerði Jóhann grein fyrir lánveitingum til breytinga úr olíu- hitun í innlenda orkugjafa. Þórarinn St. Sigurðsson, for- maður S.S.S. þakkaði ræðu- mönnum og öðrum þeim er að sýningunni stóðu fyrir vel gerða og fróðlega sýningu. Karl Ómar Jónsson, sem stjórn- að hafði umræðum, bauð gestum upp á frambornar veitingar. Margir sýningarbásarnir voru athyglisverðir, þó að ekki væri mikið um nýjungar, nema eim- borðið „Litli gufuskemillinn", frá Haldi sf. í IJafnarfirði. Eg hélt að iðnaðarmenn á Suð- urnesjum myndu nýta betur þetta einstaka tækifæri. T.d. hefðu ofn- ar OSS fengið jákvæðan saman- burð í ofnasamkeppni á sýning- unni. Plastgerð Suðurnesja hf. var með mjög snyrtilegan bás. Fram- leiðsla Pípulagningarverkstæðis Suðurnesja blasti við er gengið var í sýningarsal og vakti strax at- hygli. Bás Hitaveitu Suðurnesja bar þó af varðandi myndauðgi og búnað. Eins og að framan getur lagði H.S. til mannskap til uppsetning- ar sýningarinnar og einnig hús- næði. Við samruna IJ.S. og rafveitna Skagans þurfti aukið húsrými og hafði H.S. nýverið keypt fiskhús dánarbús Jóns Ingiberssonar en það er parhús við fyrri húseign H.S. Alls er húsnæði þetta um 700 m2. Um 200 m2 verða innrétt- aðir fyrir skrifstofur en 500 m2 sem lagerhúsnæði og var það tek- ið undir sýninguna. Samantekt J.T. FAXI 379
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.