Faxi - 01.12.1985, Page 68
Aðalfundur Norræna félagsins 26. október 1985
ARSSKYRSLA
Norræna félagið í Keflavík var
stofnað 4. maí 1956 og voru stofn-
endur 50 talsins, þar af ein kona.
í dag teljast félagar vera 226 og eru
konur 114, (nákvæmlega helm-
ingur félaga). Þess skal þó getið að
öll Suðurnes falla undir félagið
hér í Keflavík samkvæmt regl-
um Sambands N.F. Aðeins í
Grindavík er sjálfstæð deild Nor-
ræna félagsins. Því miður virðist
öllu meiri fækkun vera á félaga-
fjölda í heild en aukning síðast-
liðið ár. Nálægt 20 nýir félagar
hafa bæst í félagið á árinu, en
fleiri virðast ætla að falla út af fé-
lagaskrá. Þeir sem ekki greiða ár-
gjald til félagsins tvö ár í röð falla
sjálfkrafa út af félagaskrá og þykir
mér það mjög miður að rúmlega
40 manns eru nú í þeim hópi. Það
er augljóst að margir félagsmenn
hafa orðið fyrir vonbriðgum vegna
þess að félaginu hefur ekki tekist
að bjóða upp á ferðir til Norður-
landanna á áberandi betri kjörum
en bjóðast á almennum markaði.
Vonandi tekst því á komandi ár-
um að ná aftur þeirri stöðu, að
fólki sé hagur í því að vera með,
þv( staðreyndir sýna að áhugi á
norrænni samvinnu byggir ekki á
hugsjóninni einni saman.
Frá síðasta aðalfundi, sem hald-
inn var 24. nóvember 1984, hafa
verið haldnir 8 stjómarfundir.
Stjórn og verkaskipting er sem
hér segir: Formaður Guðný
Gunnarsdóttir, varaformaður
Ólafur Björnsson, ritari Einar
Ólafsson, gjaldkeri Bragi Pálsson
og meðstjórnandi Eyjólfur
Eysteinsson. Varastjórn: Þorbjörg
Pálsdóttir, Liss Ólafsson og Bjöm
Stefánsson.
Helstu viðfangsefni
1. Þátttaka í vinabæjarsam-
skiptum við Hjörring í Dan-
mörku, Kristiansand í Noregi,
Kerava í Finnlandi og Trollháttan í
Svíþjóð. Formaður og ritari deild-
arinnar tóku þátt í sameignlegum
fundi norrænu félaganna í þess-
um vinabæjum, sem haldinn var í
TVollháttan dagana 16. og 17.
ágúst s.l. Þetta var í fyrsta sinn
sem slíkur fundur er haldinn og
Guðný Gunnarsdóttir.
þótti hann takast mjög vel. Ákveð-
ið var að reynt yrði að halda slíka
fundi annað hvert ár í framtíðinni
og viðhalda með þeim hætti því
góða sambandi sem nú hefur
náðst milli Norrænu félaganna í
þessum vinabæjum. Á þessum
fundi var m.a. rætt um hvernig
hægt yrði að gefa möguleika á al-
mennari þátttöku í þessum vina-
bæjatengslum, en eins og flestir
vita þá hafa þessi tengsl fyrst og
fremst verið á vegum bæjarstjórna
auk mikils og góðs sambands á
íþróttasviðinu meðal unglinga.
Ákveðið var að reyna að hvetja til
þess að Keflavík kæmi einnig inn
í það ágæta samstarf sem verið
hefur um árabil milli kennara og
skólanema í hinum vinabæjun-
um, og eru þegar uppi áætlanir
um slíkt. Einnig er ætlunin að
reyna að hvetja til beinna sam-
skipta milli félaga og klúbba. 1 því
sambandi er vert að geta þess að
áhugamanna leikhópur í TVoll-
háttan hefur mikinn áhuga á að
heimsækja okkur. - Hugmynd
kom um að skiptast á fréttum og
dagblöðum eða bæjarblöðum
milli bókasafna í vinabæjunum.
Ákveðið var að sameina 10 slides
myndir (litskyggnur) frá hverjum
vinabæ í einn sýningakassa, sam-
ræma síðan og fjölfalda ásamt
texta. Þessar myndir verði síðan
notaðar í skólum og bókasöfnum.
Hugmyndin um að láta útbúa
,,video“ spólu í sama tilgangi var
talin of kostnaðarsöm þannig að
Við óskum starfsfólki okkar og
öðrum Suðurnesjamönnum
gteðitegra jóla
ogfarsætdar
á komandi ári.
GAUKSSTAÐIR HF.
GARÐI - SÍMI7049
Verklýðs- og sjómanna-
félag Keflavíkur
og nágrennis
Verkakvennafélag
Keflavíkur og Njarðvíkur
Skrifstofur félaganna eru að Hafnargötu 80
Síminn er 2085.
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9 — 17.
Föstudaga kl. 9—3.
380 FAXI