Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 68

Faxi - 01.12.1985, Page 68
Aðalfundur Norræna félagsins 26. október 1985 ARSSKYRSLA Norræna félagið í Keflavík var stofnað 4. maí 1956 og voru stofn- endur 50 talsins, þar af ein kona. í dag teljast félagar vera 226 og eru konur 114, (nákvæmlega helm- ingur félaga). Þess skal þó getið að öll Suðurnes falla undir félagið hér í Keflavík samkvæmt regl- um Sambands N.F. Aðeins í Grindavík er sjálfstæð deild Nor- ræna félagsins. Því miður virðist öllu meiri fækkun vera á félaga- fjölda í heild en aukning síðast- liðið ár. Nálægt 20 nýir félagar hafa bæst í félagið á árinu, en fleiri virðast ætla að falla út af fé- lagaskrá. Þeir sem ekki greiða ár- gjald til félagsins tvö ár í röð falla sjálfkrafa út af félagaskrá og þykir mér það mjög miður að rúmlega 40 manns eru nú í þeim hópi. Það er augljóst að margir félagsmenn hafa orðið fyrir vonbriðgum vegna þess að félaginu hefur ekki tekist að bjóða upp á ferðir til Norður- landanna á áberandi betri kjörum en bjóðast á almennum markaði. Vonandi tekst því á komandi ár- um að ná aftur þeirri stöðu, að fólki sé hagur í því að vera með, þv( staðreyndir sýna að áhugi á norrænni samvinnu byggir ekki á hugsjóninni einni saman. Frá síðasta aðalfundi, sem hald- inn var 24. nóvember 1984, hafa verið haldnir 8 stjómarfundir. Stjórn og verkaskipting er sem hér segir: Formaður Guðný Gunnarsdóttir, varaformaður Ólafur Björnsson, ritari Einar Ólafsson, gjaldkeri Bragi Pálsson og meðstjórnandi Eyjólfur Eysteinsson. Varastjórn: Þorbjörg Pálsdóttir, Liss Ólafsson og Bjöm Stefánsson. Helstu viðfangsefni 1. Þátttaka í vinabæjarsam- skiptum við Hjörring í Dan- mörku, Kristiansand í Noregi, Kerava í Finnlandi og Trollháttan í Svíþjóð. Formaður og ritari deild- arinnar tóku þátt í sameignlegum fundi norrænu félaganna í þess- um vinabæjum, sem haldinn var í TVollháttan dagana 16. og 17. ágúst s.l. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn og Guðný Gunnarsdóttir. þótti hann takast mjög vel. Ákveð- ið var að reynt yrði að halda slíka fundi annað hvert ár í framtíðinni og viðhalda með þeim hætti því góða sambandi sem nú hefur náðst milli Norrænu félaganna í þessum vinabæjum. Á þessum fundi var m.a. rætt um hvernig hægt yrði að gefa möguleika á al- mennari þátttöku í þessum vina- bæjatengslum, en eins og flestir vita þá hafa þessi tengsl fyrst og fremst verið á vegum bæjarstjórna auk mikils og góðs sambands á íþróttasviðinu meðal unglinga. Ákveðið var að reyna að hvetja til þess að Keflavík kæmi einnig inn í það ágæta samstarf sem verið hefur um árabil milli kennara og skólanema í hinum vinabæjun- um, og eru þegar uppi áætlanir um slíkt. Einnig er ætlunin að reyna að hvetja til beinna sam- skipta milli félaga og klúbba. 1 því sambandi er vert að geta þess að áhugamanna leikhópur í TVoll- háttan hefur mikinn áhuga á að heimsækja okkur. - Hugmynd kom um að skiptast á fréttum og dagblöðum eða bæjarblöðum milli bókasafna í vinabæjunum. Ákveðið var að sameina 10 slides myndir (litskyggnur) frá hverjum vinabæ í einn sýningakassa, sam- ræma síðan og fjölfalda ásamt texta. Þessar myndir verði síðan notaðar í skólum og bókasöfnum. Hugmyndin um að láta útbúa ,,video“ spólu í sama tilgangi var talin of kostnaðarsöm þannig að Við óskum starfsfólki okkar og öðrum Suðurnesjamönnum gteðitegra jóla ogfarsætdar á komandi ári. GAUKSSTAÐIR HF. GARÐI - SÍMI7049 Verklýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur og nágrennis Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur Skrifstofur félaganna eru að Hafnargötu 80 Síminn er 2085. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9 — 17. Föstudaga kl. 9—3. 380 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.