Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 70

Faxi - 01.12.1985, Side 70
Kútt fólk á öllum aldri. Flestallir dansa, aðrir spila á spil. Ég leit inn í hús aldraðra að Suð- urgötu 15 í Keflavík, miðvikudag- inn 20. nóv. s.l.. Þar var glatt á hjalla og stóð þá gleðistund sem hæst. Þessar , ,Gleðistundir“ eins og þær eru kallaðar, eru annan hvern miðvikudag. Annan daginn er bingó, en hinn spilað, sungið og dansað. Alltaf eru kaffiveitingar og meðlæti, sem fólk borgar með íimmtíu krónum. Þegar ég kom þarna voru rúm- lega 30 manns að spila, flestir vist. Brátt var kaffi fram borið og síðan var sungið. Bjami Össurar- son spilaði undir á harmonikku. Það verður að segjast eins og er að söngurinn var ekki eins og á ,,Grímuballi“ óperunnar, en þó býsna góður, þar sem söngfólkið var allt komið í eldri deild. Ekki sættu þessir ágætu eldri borgarar sig lengi við að syngja Öxar við ána, Ó fögur er vor fóst- urjörð eða önnur ámóta ættjarðar- GLEÐISTUND ljóð. Bjarni varð að spila „Komdu inn í kofann minn“ eða „Ljúfa Anna“ - viðkvæmt valstónfall, sem minnti á gamlar sælustundir í Ungó eða Kvennó. Eða þá bara Fugladansinn með öllum sfnum stígandi og hnígandi - tilþrif sem aðeins eldri unglingar geta leikið af list. Já, dunandi dans og dæmalaust var þetta góð , ,Gleði- stund“. Eins og ævinlega var kvenfólk í meirihluta. Konurnar em líka miklu duglegri við að skemmta sér og ekkert feimnar við að faðma hver aðra og snarsnúast í Eldhúsið er heimilislegt. Frá vinstri: Elsa Kjartansdóttir forstöðukona, Jóhanna Hermannsdóttir og Klara Ásgeirsdóttir, sem stjórnar bingói og öðrum atriðum gleðistundar. Myndir J.T. S Oskum Suðurnesjabúum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu. Hafnargötu 62, Keflavík 382 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.