Faxi - 01.12.1985, Síða 70
Kútt fólk á öllum aldri.
Flestallir dansa, aðrir spila á spil.
Ég leit inn í hús aldraðra að Suð-
urgötu 15 í Keflavík, miðvikudag-
inn 20. nóv. s.l.. Þar var glatt á
hjalla og stóð þá gleðistund sem
hæst. Þessar , ,Gleðistundir“ eins
og þær eru kallaðar, eru annan
hvern miðvikudag. Annan daginn
er bingó, en hinn spilað, sungið og
dansað. Alltaf eru kaffiveitingar
og meðlæti, sem fólk borgar með
íimmtíu krónum.
Þegar ég kom þarna voru rúm-
lega 30 manns að spila, flestir
vist. Brátt var kaffi fram borið og
síðan var sungið. Bjami Össurar-
son spilaði undir á harmonikku.
Það verður að segjast eins og er að
söngurinn var ekki eins og á
,,Grímuballi“ óperunnar, en þó
býsna góður, þar sem söngfólkið
var allt komið í eldri deild.
Ekki sættu þessir ágætu eldri
borgarar sig lengi við að syngja
Öxar við ána, Ó fögur er vor fóst-
urjörð eða önnur ámóta ættjarðar-
GLEÐISTUND
ljóð. Bjarni varð að spila „Komdu
inn í kofann minn“ eða „Ljúfa
Anna“ - viðkvæmt valstónfall,
sem minnti á gamlar sælustundir
í Ungó eða Kvennó. Eða þá bara
Fugladansinn með öllum sfnum
stígandi og hnígandi - tilþrif sem
aðeins eldri unglingar geta leikið
af list. Já, dunandi dans og
dæmalaust var þetta góð , ,Gleði-
stund“.
Eins og ævinlega var kvenfólk í
meirihluta. Konurnar em líka
miklu duglegri við að skemmta
sér og ekkert feimnar við að
faðma hver aðra og snarsnúast í
Eldhúsið er heimilislegt. Frá vinstri:
Elsa Kjartansdóttir forstöðukona,
Jóhanna Hermannsdóttir og Klara
Ásgeirsdóttir, sem stjórnar bingói og
öðrum atriðum gleðistundar. Myndir
J.T.
S
Oskum Suðurnesjabúum
gleðilegra jóla og
farsældar á
komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Hafnargötu 62, Keflavík
382 FAXI