Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 71
Félag skólastjórnenda á Suðurnesjum stofnað
Stofnfundur hins nýja félags fór fram á Glóð-
inni í Keflavík fimmtudaginn 14. nóv. sl.
Félagsmenn eru skólastjórar og yfirkennarar
grunnskóla á Suðurnesjum auk skólameistara
og aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. I lögum hins nýja félags segir m.a.:
Tilgangur félagsins er að efla samstarf í millum
skóla á Suðurnesjum, stuðla að bættu skóla-
starfi á Suðurnesjum; gera félagsmönnum kleift
að kynna sér nýjungar í skólastarfi.
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Hjálmar Árnason, skólameistari F.S., formað-
ur, Sigríður lngibjörnsdóttir, yfirkennari Njarð-
víkurskóla, ritari og Guðjón Kristjánsson,
skólastjóri Sandgerðisskóla, meðstjórnandi.
Faxi óskar félaginu velgengni og býður um leið
nýja stjórnendur skóla á svæðinu sérstaklega
velkomna til starfa en það eru skólastjórarnir í
Vogum, Sandgerði og Garði auk skólameistara
og aðstoðarskólameistara F.S.
Stofnfélagar Félags skólastjórnenda á Suðumesjum (Skammstafað SKÓSUÐ). Fremst til vinstri: Sigurður
E. Forkclsson, skólastjóri Holtaskóla; Bergsveinn Auðunsson, skólastjóri Gerðaskóla; Gylfi Guðmunds-
son, skólastjóri Njarðvfkurskóla; Sigriður Ingibjörnsdóttir, yfirkennari Njarðvíkurskóla; Halldóra Ingi-
bjömsdóttir, yfirkennari Gerðaskóla; Guðjón Kristjánsson, skólastjóri Sandgerðisskóla; Vilhjálmur Ket-
ilsson, skólastjóri Myllubakkaskóla; lngvar Guðmundsson, yfirkennari Holtaskóla; Sturlaugur Ólafsson,
aðstoðarskólameistari F.S. (1 veikindaforfollum Ingólfs Halldórssonar); Kristján A. Jónsson, yfirkennari
Myllubakkaskóla; Gunnlaugur Dan, skólastjóri Grindavtkurskóla og Hjálmar Árnason, skólameistari
F. S. (vel skóaður eins og formanni ,,SKÓSUÐARA" sœmir). TVo félaga vantaði á stofnfimdinn, þá Einar
Ólafsson, skólastjóra Stóru-Vogaskóla og Halldór Ingvason, yfirk. Grindavíkurskóla. — Ljósm. P. Ket.
oiopinn
. ™ UACMAD^i
HAFNARGÖTU 90 - 230 KEFLAVÍK
SÍMI 92-2652, 92-2960
I verslun okkar færð þú alla þessa„litlu
hluti sem hafa svo mikið að segja í
heildarútliti baðherbergisins.
ítalska línan okkar er sú virtasta
í daa, glæsileiki út í gegn og ótvíræður
gæðastimpill hvar sem er.
Litasýnishorn