Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 71

Faxi - 01.12.1985, Page 71
Félag skólastjórnenda á Suðurnesjum stofnað Stofnfundur hins nýja félags fór fram á Glóð- inni í Keflavík fimmtudaginn 14. nóv. sl. Félagsmenn eru skólastjórar og yfirkennarar grunnskóla á Suðurnesjum auk skólameistara og aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja. I lögum hins nýja félags segir m.a.: Tilgangur félagsins er að efla samstarf í millum skóla á Suðurnesjum, stuðla að bættu skóla- starfi á Suðurnesjum; gera félagsmönnum kleift að kynna sér nýjungar í skólastarfi. Fyrstu stjórn félagsins skipa: Hjálmar Árnason, skólameistari F.S., formað- ur, Sigríður lngibjörnsdóttir, yfirkennari Njarð- víkurskóla, ritari og Guðjón Kristjánsson, skólastjóri Sandgerðisskóla, meðstjórnandi. Faxi óskar félaginu velgengni og býður um leið nýja stjórnendur skóla á svæðinu sérstaklega velkomna til starfa en það eru skólastjórarnir í Vogum, Sandgerði og Garði auk skólameistara og aðstoðarskólameistara F.S. Stofnfélagar Félags skólastjórnenda á Suðumesjum (Skammstafað SKÓSUÐ). Fremst til vinstri: Sigurður E. Forkclsson, skólastjóri Holtaskóla; Bergsveinn Auðunsson, skólastjóri Gerðaskóla; Gylfi Guðmunds- son, skólastjóri Njarðvfkurskóla; Sigriður Ingibjörnsdóttir, yfirkennari Njarðvíkurskóla; Halldóra Ingi- bjömsdóttir, yfirkennari Gerðaskóla; Guðjón Kristjánsson, skólastjóri Sandgerðisskóla; Vilhjálmur Ket- ilsson, skólastjóri Myllubakkaskóla; lngvar Guðmundsson, yfirkennari Holtaskóla; Sturlaugur Ólafsson, aðstoðarskólameistari F.S. (1 veikindaforfollum Ingólfs Halldórssonar); Kristján A. Jónsson, yfirkennari Myllubakkaskóla; Gunnlaugur Dan, skólastjóri Grindavtkurskóla og Hjálmar Árnason, skólameistari F. S. (vel skóaður eins og formanni ,,SKÓSUÐARA" sœmir). TVo félaga vantaði á stofnfimdinn, þá Einar Ólafsson, skólastjóra Stóru-Vogaskóla og Halldór Ingvason, yfirk. Grindavíkurskóla. — Ljósm. P. Ket. oiopinn . ™ UACMAD^i HAFNARGÖTU 90 - 230 KEFLAVÍK SÍMI 92-2652, 92-2960 I verslun okkar færð þú alla þessa„litlu hluti sem hafa svo mikið að segja í heildarútliti baðherbergisins. ítalska línan okkar er sú virtasta í daa, glæsileiki út í gegn og ótvíræður gæðastimpill hvar sem er. Litasýnishorn

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.