Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 74

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 74
Fyrirburðir og draumar frú Mörtu Valgerðar Jónsdóttur FRAMHALD AF BLS. 353 en það fyrsta sem ég gjörði næsta morgun var að biðja Björn að hætta við að biðja um húsið til leigu, sem hann gjörði líka strax. Svo leið nokkur tími og við höfð- um algjörlega hætt að hugsa um gamla húsið til íbúðar. Þá dreymir mig ennþá einu sinni, að ég er þangað komin. Ég þykist hugsa með mér að hér sé ég nú mjög svo óvelkomin og réttast væri fyrir mig að fara strax aftur, þó geri ég það ekki en held áfram inn í eina stofuna. Þar sé ég þá alla þöl- skylduna, en mest tók ég samt eftir gamalli konu, sem ég þóttist vita að væri húsfreyja. Horfði hún á mig mjög vingjarnlega. Ég at- hugaði sérstaklega klæðaburð hennar og sá að kjóllinn mundi gjörður af heimaunnu vaðmáli dökkur að lit. Allir voru mjög vingjarnlegir, enginn sagði neitt en út úr allra andlitum skein þakklátsemi. Ég vaknaði svo áður en ég komst aftur út, og nú eru þessir draumar búnir. Við þessa síðustu drauma bætir svo frú Marta því, að hún hafði hitt að máli húsmóðurina, er síð- ast bjó í þessu einkennilega húsi og fær að vita hjá henni, að það fólk hafði oft orðið vart við eitt og annað einkennilegt, en var allt samtaka í að láta ekkert á því bera. Frú Marta kveðst líka hafa spurt konuna hvort hún hafi tekið eftir nokkur sérstöku með blómin sín. Konan sagði að reyndar hefði það nú ekki verið, nema hvað hún hefði eiginlega aldrei þurft að vökva blómin og þó hefðu þau alltaf verið í suður gluggum og verið ljómandi falleg, á meðan hún var í því húsi. Líka segist Marta hafa átt tal við gamla konu, sem þar var í þorpinu, í tíð þessa kaupmannsfólks og er þar enn. Segir hún að lýsingin á gömlu konunni sé nákvæmlega rétt. Frú- in hafi ætíð, heima fyrir, verið í dökkum heima unnum vaðmáls- kjól. En hvítklædda unga stúlkan hafi verið dóttir hjónanna. En að sú stúlka hefði verið til segist frú Marta ekkert hafa vitað um. Sömuleiðs ýmsar fleiri upplýsing- ar þessum draumum viðvíkjandi segist hún hafa fengið, og alveg borið saman við það, sem fyrir hana bar í draumunum. Hún segir að það séu í raun og veru aukaatriði enda þetta orðið svo langt mál. Draumaráðnine mín var rétt. Næst kemur draumur sem frú Mörtu dreymdi aðfaranótt 3. aprfl veturinn 1916, þegar ég var fyrir sunnan. Þú manst máski eftir því að ég skrapp til Keílavíkur og var þar viku tíma og það var einmitt eina þá nótt, sem hana dreymdi eftirfarandi draum. Hún sagði mér hann strax um morguninn, þegar ég vaknaði. Þorgrímur læknir í Keflavík hafði þennan vetur ungan aðstoð- arlækni, Guðmund Ásmundsson að nafni, sem hafði þann hæfi- leika ásamt ileirum að hann var söngmaður í betra lagi. Kveldið áður en Mörtu dreymir þennan draum er Guðmundur læknir sóttur suður í Hafnir til konu sem var að fæða barn. Rétt áður en ég vakna (segir frú Marta), morgun- inn eftir að læknirinn var sóttur, til áðurnefndrar konu, dreymir mig að ég sé stödd upp í kirkju og eigi að fara að messa. Ég var upp á sönglofti ásamt ileirum úr söngílokknum og þar á meðal Guðmundur læknir. Allt í einu þykir mér læknirinn byrja einn og syngja tvö versin fyrstu af sálm- inum ,,Allt eins og blómstrið eina“. Við þetta vaknaði ég, og var þá sem hvíslað væri að mér ráðn- ingu draumsins, að konan væri dáin. Það reyndist líka rétt vera, því hún var liðin þegar læknirinn kom inneftir. Titanic slysið Kveldið 13. apríl 1912, þegar ég var háttuð og ætlaði að fara að sofa, sé ég með al'tur augun fram undan mér haf spegilslétt, land sé ég hvergi. Dimma var mikil samt gat ég greint skip afar stórt, virtist mér það vera seglskip. Það hélt áfram örlitla stund en allt í einu stansaði það líkt og eitthvað hefði orðið fyrir því, en ekki sá ég hvað það gat verið. Svo sé ég setta út bátana og fólkið stíga í þá en á meðan fer skipið að síga að fram- an og að síðustu stóð það alveg uppá endann og seig svo niður í hafið.en fólkið sá ég vera að berj- ast við dauðann í bylgjunum, sem urðu af skipinu þegar það sökk. Þá hreyfði ég augun og sýnin var Jóhan n Jónsson: Legg í lófa kotkarls Legg í lófa kotkarls klukku þessa lands svo hátt ’ún megi hljóma í hlustum almúgans. Upp við heiðarhornið hann sér reisti bú, með cernar sínar átján og eina mjólkurkú. En ást á ungri konu hann áður hafði fest. Sú eftir heit með honum í heiðarbýlið sest. Ef sumrin voru sólrík kom sauðahjörðin hans feit af fjöllum ofan við fögnuð konu og manns. En þegar vetrarveðrin verstu lögðust að þorrann máttu þreyja við þrengd í nœgta stað. Er hjarn var yfir öllu inni stóð þá féð. Beitin löngu búin ei bóndinn við það réð. Á góu glumdu stormar gcegðust börð úr snjó, bóndinn fénu beitti um blásinn heiðamó. En þegar vorið vaknaði og vorsól skein á fold. Gcegðust grcenir sprotar úr gróðurríkri mold. Þá keifaði hann í kaupstað og korn í brauðið fékk, og heim í heiðarbceinn hröðum skrefum gekk. Brauð fór konan baka bceði hresstust fljótt. Södd og glöð þau sofnuðu sumarbjarta nótt. Já, svona er saga margra í sefa þeirra greipt, sem ekki hyggja að auðna með auðlegð verði keypt. Nú legg í lófa kotkarls klukku þessa lands, því margur vitur maður er meðal almúgans. 386 FAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.