Faxi - 01.05.1989, Blaðsíða 5
hópar frá Noregi, Vestur-Þýska-
landi og Bandaríkjunum hafa gist
hjá okkur í Svenstrup, og við kom-
um á tónlistarsambandi, bæði milli
kóranna og hljómsveitanna. Síðast
nutum við góðra samverustunda
með skólahljómsveit frá Vestur-
Þýskalandi, þar sem við unnum í
sameiningu að verkefnum á tónlist-
arsviðinu. Við höfum trú á því að
samvinna á tónlistarsviði sé góður
og eölilegur grundvöllur til sam-
vinnu í breiöara samhengi, til betra
skilnings þjóöa í milli.
Verkefnaskrá okkar er breið, frá
sálmasöng til jass. A hverju ári
semjum viö söngleik, sem við setj-
um upp fyrir 1500 áhorfendur á
þremur sýningum. Með samtals 15
söngleikjum hefur kór Svenstrups
skóla þannig blásið áhuga í aðra
kóra og hljómsveitir. TVo þessara
söngleikja höfum við náð að fara
með til annarra landa. Viöfangsefni
okkar hafa verið mismunandi, svo
sem ævintýri H. C. Andersens og
sögur Astrid Lindgren. í apríl ætl-
um við að færa upp nýja útgáfu af
hinni sígildu sögu Jules Verne,
,,Umhverfis Jörðina á 80 dögum.“
Kórinn okkar æfir einu sinni í
viku, alltaf á föstudögum. Fyrst æf-
ir stóri kórinn, svo hittist Öldunga-
kórinn. Öldungakórinn er til að gefa
eldri nemendum tækifæri til að
syngja erfiðari hlutverk. Öldunga-
kórinn kemur fram á svo til öllum
hljómleikum sem stóri kórinn held-
ur. Þeir gefa góða tilbreytingu í dag-
skrár okkar.
Thomas Moller stjórnar báöum
kórunum. Hann útskrifaðist sem
tónlistarkennari árið 1973. Lauk
háskólaprófi í tónlistarfræðum árið
1984. Hann hefur stjórnað og útsett
verk kórsins síðan 1973. Að auki
taka 7 aðrir fullorðnir þátt í hinu
umfangsmikla kórstarfi, Birthe
Moller, Karen Hagemann, Gert
Simonsen, Inger Bolander, Ulla
Juel, Povl Juel, Soren Hedegaard -
taka þátt og sjá um fjárhagsmál,
dagskrár, sviðsetningu, tækni-
atriði, uppeldissvið og ýmislegt
annaö. Einnig starfar kórinn í ná-
inni samvinnu við allan foreldra-
hópinn.
Við höfum mikinn áhuga á að
ferðast með þennan vel agaða kór
okkar, - því við trúum því einfald-
lega að hvatningin aukist, og einnig
hæfileikar bamanna til að syngja
betur, þegar þau einbeita sér sam-
eiginlega, dögum saman að tónlist-
arverkefnum. Ég á marga góða vini
á Islandi, hef komið þangað mörg-
um sinnum - og ég hef ályktaö að
dönsku bömin okka þurfi að kynn-
ast Islandi. Mér finnst aö við eigum
svo margt sameiginlegt.
Við vonum að við fáum jákvæðar
undirtektir á íslandi og hlökkum til
að syngja l'yrir íslenska áheyrendur.
Hús í Skrúðgarð Keflavíkur
Þegar undirritaður var fyrir
nokkra á ferð um Snæfellsnes, þá
kom ég m.a. við í Stykkishólmi. Það
var æfintýri líkast að koma í Hólm-
inn, eins og margir segja. Bæjar-
stæðið er einstaklega fagurt og bær-
inn sjálfur mjög snyrtilegur. Það
vakti mikla athygli mína, hversu
mörg fyrirtæki höfðu fegrað sitt
nánasta umhverfi og mætti það
verða öðram til eftirbreytni. Ekki er
neinn eiginlegur skrúðgarður í
bænum, en í n.k. tijálundi gegnt
íþróttavellinum stendur þetta
skemmtilega hús sem sést á með-
fylgjandi mynd. Ég skoðaði það
með mikilli athygli, því ég sá í huga
mínum svipað hús uppsett í skrúð-
garðinum í Keflavík. Þennan dag
var auglýst, að ætti að fara fram
kaffisala í góðgerðaskyni og virtist
mér vera pláss fyrir 40-50 manns í
húsinu.
Ég læt mér detta í hug, að slíkt hús
gæti gengt ýmsum hlutverkum í
Keflavík, þó fyrst og fremst sem
staður, þar sem fólk hittist og spjall-
ar saman á góðvirðisdögum. Þá sé
ég einnig fyrir mér, að það mætti út-
búa púttvöll í næsta nágrenni við
húsið, enda nýtur sú íþrótt vaxandi
vinsælda. Þar mætti síðan leigja út
kúlur og kylfur.
Ég kasta hér fram þessari hug-
mynd, ef einhveijir kynnu að fá
áhuga á að koma henni í ffam-
kvæmd.
HH.
FAXI 161