Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1989, Síða 19

Faxi - 01.05.1989, Síða 19
rifinn fyrir nokkrum árum. Hús þessi hafa verið sérlega glæsileg á sínum tíma, steypt og öll klædd að innan með panel. Skóladagurinn var yfirleitt frá 10 að morgni til 3 eftir hádegi og þótti hæfilegt að taka 15 mínútna hádeg- iskaffl. Sagði mér maður sem sótti þennan skóla er hann hóf starfsemi sína, að kennslustofunni var stund- um breytt í einni svipan í leikfimi- sal. Allir hjálpuðust að til þess að koma borðunum þannig fyrir, að sem minnst færi fyrir þeim. Síðan hófst leikfimitíminn. Aðallega voru þetta alls konar stöðvaræfingar en þó var einn leikur mjög vinsæll. Hann var fólginn í því að allir hopp- uðu á einum fæti eins lengi og þeir gátu. Haldið var áffam þangað til einn stóð eftir, sem þá hrósaði sigri. Nú kann einhver að spyija: Hvers vegna var verið að byggja skóla svo langt ffá Sandgerði þar sem nokkr- ar hræður búa? Svarið við þeirri spumingu er einfalt: Á þessum ár- um var byggðin dreifð í hreppnum og skiptist í nokkra byggðakjama. Á þeim tíma, áður en vélbátar urðu almennir, gmnaði víst fáa að Sand- gerði ætti eftir að verða stærsti byggðakjaminn. Fjölmennustu hverfin vom þá Hvalsneshverfi og Kirkjubólskverfi. Skólar þessir starfa síðan til 1933, en þá er syðri skólinn lagður niður og fluttur inn að Sandgerði. Kennt var hins vegar í Tjamarskólanum til ársins 1937. Ekki má láta það hjá líða að minn- ast þeirra kennara sem störfuðu í þessum skólum. Sigurbjörg Einars- dóttir frá Endagerði og Guðrún Ein- arsdóttir ffá Sandgerði kenndu hér til 1911, en þá tók systir Guðrúnar, Magnea, við og starfaði hún til 1914. Sigurbjörg kenndi ein í báðum skól- um í fjögur ár eða til 1918. Kenndi hún sinn hvom daginn í hvomm skóla og þurfti því að ganga um 7 km leið, oft í misjöfnum veðmm. Til eru bréf ffá 1914 þar sem skóla- nefhd fer þess á leit við ffæðslu- málastjóra að kennt verði viku í senn, svo kennarinn þurfi ekki að fara á milli daglega. Guðmundur Ragnar Ólafsson ffá Grindavík starfaði við skólana ffá 1918—1920, en þá tók Þomnn Lýðsdóttir við, en hún var kona Stefáns Jóhannssonar °g bjuggu þau síðast að Sunnuhvoli. Gunnlaugur Jósefsson hreppstjóri á Sólbakka kom hingað 1926. Kenndi hann suður ffá þar til sá skóli var lagður niður, en Siguringi Framhald á bls. 186 VELDU BETRI KOSTINN NONNI OG BUBBI HRINGBRAUT 92 SÍMAR 11580-14188 FAXI 175

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.