Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1989, Síða 22

Faxi - 01.05.1989, Síða 22
MINNING Guðrún St. Bergmann Fœdd 27. okt. 1908 Dóin 27. april 1989 Er vorið heilsar með vatnaniðinn og blómaangan og bernskufriðinn, og hádegissólin í heiði skín, mig héðan kveddu og heim til þín. Ó, láttu það koma með Ijós og angan og blóm í fangi og bros um vangann og dagliljum varpa á dauðans stig og setjast hjá mér og svœfa mig. Með þessum ljóðlínum kveð ég mágkonu mína, Guðrúnu St. Bergmann. Hún hafði barist við erfiðan sjúkdóm undanfarin ár, en ffam á síðasta dag bar hún höfuðið hátt, hún bognaði aldrei, en lést í svefni kl. 6 að morgni 27. apríl s.l. Já, blessað vorið settist hjá þess- ari ágætu konu, með blóm í fangi og bros um vanga og svæfði hana hinum hinsta svefni. Guðrún fæddist í Keflavík 27. okt. 1908, dóttir hjónanna Stefáns M. Bergmann og Guðlaugar Berg- steinsdóttur. Guðrún var næst elsta bam þeirra hjóna. Elstur er Jóhann, næstur Guðrúnu var Hreggviður sem látinn er fyrir fá- um ámm, þá Þorsteinn, Anna og yngst er Stefanía. Öll hafa þau systkinin átt heima í Keflavík frá fæðingu nema Hreggviður, sem bjó síðustu æviár sín í Reykjavík. Guðlaug móðir Guðrúnar var al- in upp hjá þeim hjónum Guðrúnu og Guðmundi Hannessyni. Guð- mundur var íshússtjóri hjá Duus, síðar oddviti í Keflavík, formaður sóknamefndar og meðhjálpari. Guðrún var einnig að nokkru leyti alin upp hjá þessum hjónum og var að miklu leyti hjá þeim fram yfir fermingu. Guðmundur söng í kór Keflavíkurkirkju, og þegar Guðrún var 14 ára gömul fór hún Stefán frá Hvitadal með honum í kórinn eða árið 1922. Guðrún lagði mikla rækt við þennan félagsskap og lét sig helst aldrei vanta, hún söng við allar mögulegar athafnir, allt þar til hún ákvað að hætta árið 1969, hafði hún þá verið ein besta kjölfesta kórsins í 47 ár. Kór Keflavíkur- kirkju sýndi henni þá virðingu að standa heiðursvörð er hún var borin úr kirkju. Hinn 29. sept. árið 1929 komu 28 ungmenni saman í samkomu- húsinu Skildi og stofnuðu Ung- mennafélag Keflavíkur. Guðrún, sem þá var 21 árs í blóma lífsins, var einn af stofnendunum. Það var strax mikil gróska í þessum fé- lagsskap og létu ungmenning sig varða öll möguleg málefni. Allir félagamir störfuðu af miklum þrótti, bæði konur og karlar. Þetta fólk sætti sig aldrei við það, að U.M.F.K. var í run lagt niður með tilkomu Í.B.K. Guðrún var félagi í Slysavamar- félagi kvenna í Keflavík og ein af stofnendum Kvenfélags Keflavík- ur og fyrsti formaður dagheimilis- nefndar. Guðrún lærði ung að spila á org- el, og þegar vinir og vandamenn komu saman á góðri stund, sem oft bar við, var mikið sungið við orgelundirleik. Það mun hafa verið árið 1934 að Guðrún og Júlíus Eggertsson múrarameistari vom gefin saman í hjónaband af séra Eiríki Brynj- ólfssyni á Útskálum. Þau Guðrún og Julíus eignuðust 3 böm. Elst er Guðlaug, gift Valgeiri Helgasyni málarameistara. Þau eiga 5 böm. Næstur er Guðmundur Rúnar hljómlistarmaður, kona hans er María Baldursdóttir, þau eiga tvo syni. Yngstur er Ólafur Eggert málari, giftur Svanlaugu Jóns- dóttur, þau eiga 4 böm. Bama- bamabömin em 8 að tölu. Júlíus Eggertsson eiginmaður Guðrúnar lést árið 1985 eftir lang- varandi veikindi. Þau Guðrún og Júlíus reistu sér húsið nr. 4 við Suðurgötu ásamt Ólafi bróður Júlíusar og konu hans Jónínu Jónsdóttur. Þar bjuggu þau í nokkur ár, en byggðu síðan húsið nr. 6 við Sólvallagötu ásamt Þorsteini bróður Guðrúnar og Sigríði Gísladóttur. Stefán M. Bergmann útvegs- bóndi, faðir Guðrúnar, var mikill athafnamaður. Hann hafði meðal annars ræktað upp tún þar sem nú er lóð Myllubakkaskólans og var hús þeirra Guðrúnar og Júlíusar í norðuijaðri túnsins. Það var kall- að að fara upp í Dal, þegar fara átti í heimsókn til Gunnu. Húsið var nefnilega allfjarri aðalbyggðinni. Þegar svo Stefán var búinn að slá túnið sitt, sem alltaf var síbreiðu gras, þá var eins og komið væri upp í sveit, enda fjölskyldan öll í heyskap. Túnið var svo tekið eign- amámi af Stefáni undir Myllu- bakkaskólann; þó seldi Stefán nokkrar lóðir af túninu, við Norð- urtún, Suðurtún, Skólaveg og Hringbraut. Það var ánægjulegt að Guðrún vann allmörg ár sem baðvörður við íþróttahús Myllu- bakkaskólans. Hún var þar á heimaslóðum og var trú sínu starfi. Enda þótt Guðrún hefði mikið yndi af að starfa í góðum félögum og yfirleitt að vera innan um fólk, þá var hún ekki framgjöm, en hún var traust, hafði ákveðnar skoðan- ir, hafði óbeit á óreglu og öðmm löstum, en ánægju af menningar- legum samskiptum og hollum fé- lagsskap. Oft var gestkvæmt í Dalnum. Guðrún var gestrisin og hafði yndi af að taka á móti fólki. Hún vildi líka vita af sínu fólki, vildi að unga fólkið hugsaði um meira en líð- andi stund, byggði sig vel upp fyr- ir framtíðina og að þeir eldri fæm vel með sig og ættu gott atlæti. Þær höfðu búið saman í Dalnum, Guðrún og Sigríður Gísladóttir frá því að húsið var byggt. Með þeim hafði myndast órjúfanleg tryggð og vinátta. Það var mikill styrkur fyrir Guðrúnu að eiga Sigríði að, eftir að hún missti mann sinn. Nú er Sigríður ein eftir og syrgir sína góðu vinkonu og minningamar hrannast upp. Með Guðrúnu er fallin frá óvenju kostarík kona. Kona sem setti svip á bæinn, traust og áreiðanleg, sem hélt sinni reisn þar til yfir lauk. Að leiðarlokum þökkum við hjónin ástkærri systur og mág- konu fyrir allt og allt og vottum bömum hennar og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Bödvar Þ. Pálssort. 178 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.