Faxi

Årgang

Faxi - 01.05.1989, Side 24

Faxi - 01.05.1989, Side 24
Símma mtn í)unbvab áva Erlendsína Helgadóttir, Kirkju- gerði 5 Vogum, varð aldargömul 8. ágúst sfðastliðinn. Hún fæddist í Litlabæ á Vatns- leysuströnd en foreldrar hennar voru Helgi Sigvaldason, f. að Halldórsstöðum á Vatnsleysu- strönd 9. maí 1859, d. 23. ágúst 1942, og Ragnhildur Magnúsdótt- ir, f. að Vanangri í Vestmannaeyj- um 21. desember 1857, d. 9. maí 1937. Systkini ömmu voru: Guð- rún f. 14. nóvember 1884, d. 12. mars 1917, gift Guðmundi Olafs- syni, f. 10. september 1885 að Selparti í Flóa, d. 7. janúar 1947. Guðlaugur f. 22. febrúar 1887, d. 31. mars 1952, kvæntur Guðrúnu Ólafsdóttur f. 21. apríl 1887 að Reykjavöllum í Hraungerðis- hreppi, d. 10. febrúar 1971. Jón f. 27. júní 1985, d. 30. desember 1986, kvæntur Höllu Kristínu Magnúsdóttur f. 18. febrúar 1894 í Merkigerði, Akranesi, d. 16. júlí 1985. Æskuár ömmu voru svipuð og flestra annarra barna í landinu þá, lítil eða engin skólaganga og byrjað að hjálpa til viö búskapinn um leið og kraffar leyfðu. Hún fór í vinnumennsku þegar hún stálp- aðist og árið 1909 giftist hún afa, Magnúsi Jónssyni f. 2. september 1881 íGufunesi, Mosfellssveit, d. 17. febrúar 1963. bau byrjuðu búskap á þverfelli í Lundareykjadal en síðan fluttu þau á Vatnsleysuströndina. Fyrst keyptu þau Halldórsstaðina en seinna Sjónarhólinn sem þá var með betri jörðum í hreppnum. Þau eignuðust 9 börn en 2 dóu í bemsku: Helgi f. 16. mars 1910, d. 31. mars 1962. Hann var tví- kvæntur. F'yrri kona, Valgerður Guðmundsdóttir f. 29. júní 1916, Reykjavík. Seinni kpna, Guð- björg Magnúsdóttir f. 2. júní 1914 að Landbrotum í Kolbeinsstaða- hreppi. Guðjón f. 11. júlí 1912, d. 23. janúar 1913. Ragnhildur f. 26. desember 1913, gift Kristmundi Guðmundssyni f. 18. desember 1905 að Arnarstöðum í Flóa. Guð- jón f. 9. mars 1918, d. 6. febrúar 1983, kvæntist Kristjönu Jóns- dóttur f. 5. ágúst 1919 að Hrísdal, Miklaholtshreppi d. 15. mars 1986. Anna Dagrún f. 21. ágúst 1919. TVígift. Fyrri maður, Gunn- laugur Kristjánsson f. 31. maí 1911 að Bræöraminni, Bíldudal, d. 1. mars 1962. Seinni maður, Valgeir Vilhjálmsson f. 13. sept- emþer 1923 að Hátúni, Neskaup- stað. Guðrún Ixwísa f. 18. desem- ber 1922, gift Guðmundi Björgvin Jónssyni f. 1. október 1913 að Brunnastöðum, Vatnsleysu- strönd. Guðlaug f. 20. september 1924 d. 29. júlí 1943. Sigurveig f. 22. janúar 1928, gift Leifi Kristj- ánssyni f. 13. júlí 1923 að Bárðar- búð, Breiðavíkurhreppi. Sesselja f. 22. desember 1932, d. 2. júlí 1934. Eftir samtal við elstu móður- systur mína, Rögnu, fékk ég nokkuð góða mynd á lífi ömmu minnar á Ströndinni. Búskapurinn gekk vel. Þau voru bæði vinnusöm og hagsýn þannig að aldrei skorti mat á heimilinu. Afi var stjórnsamur, ör í lund og atkvæðamikill og hafði gaman af að þeytast út og suður, á milli verka, og spjalla við bændur um búskap og landsmál. Það fór ólíkt minna fyrirömmu minni. Hún fór sjaldan út af heimilinu, vann mik- ið og lét skoðanir sínar lítið í ljós. Hér er lítil saga frá fyrstu bú- skaparárum þeirra sem sýnir glöggt hve ólík þau eru. Þegar þau keyptu Halldrosstaö- ina fylgdi með kaupunum ein hæna á ungum og þótti ömmu það góð búbót. Þá voru á heimilinu gömul frænka afa og tvö ungbörn, annað veikt, en afi var í kaupa- vinnu upp í Borgarfirði. Þegar amma hafði safnaö 20 eggjum fór hún gangandi til Hafn- arfjarðar með eggin og einn krónupening. Þar keypti hún semelíugrjón og tvíbökur handa börnunum og hélt síðan beinustu leið heim aftur. Þegar hún var ný- komin inn úr dyrunum ríður afi í hlað. Hann hafði þá veriö rétt á eftir henni alla leið úr Hafnarfirði en stoppað víða á leiðinni til þess að leita frétta af Strandarmálum. Þau voru jafnlljót heim, hann á hesti en hún gangandi. Hún á hraðferö, göngumóð og áhyggju- full, vegna barnanna og stoppaði hvergi en hann ríöandi, óþreyttur og áhyggjulaus og gaf sér góðan tíma til þess að ræða við menn. Árið 1943 seldu þau Sjónarhól á Ströndinni og Jón, bróðir ömmu, byggði þeim lítinn Sjónarhól í Vogunum. Þá var afi orðinn heilsulaus og börnin flutt að heiman. í Vogana tóku þau með sér nokkrar kindur, tvö hross og hænsni. Þau ár vann amma að mestu ein fyrir heimilinu sinnti afa, sá um dýrin og vann við fisk- breiðslu. Amma var alla tíð ákaflega létt og kvik á fæti og margir hér minn- ast þess með brosi þegar hún á áttræðisaldri stökk yfir giröingar, átakalaust, eins og fimmtán ára unglingur. Eftir að afl dó, árið 1963, var bú- stofninum fargaö og amma fór að vinna fullan vinnudag í frystihús- inu. Hún var húsbóndaholl, alltaf stundvís aldrei veik, fyrst að boröinu sínu og síðust frá verki. Þegar hún var 79 ára hætti hún ílskvinnunni, ekki vegna þreytu og ekki vegna elli, heldur vegna þess að kaupið var of hátt! I Iún hélt því fram að hún hlyti aö af- kasta minnu en yngri konurnar (allir vissu þó betur) og fannst því ósanngjarnt að hún hefði jafnhátt kaup og þær. Kauplækkun kom ekki til greina af hálfu vinnuveit- andans og þá hætti amma mín að vinna og settist í helgan stein. Áriö 1978, þá 89 ára gömul fiutti hún svo heim til pabba og mömmu í Kirkjugerði 5 og helur síðan stytt sér stundir með prjónaskap. Á síðasta ári prjónaði hún 48 ullarteppi sem send voru til vanþróaöra landa fyrir milli- göngu hjálparstofnana. Hún sér engan tilgang í því að safna ver- aldlegum auði og ellilífeyrinn sinn hefur hún gefið til góðgerðar- starfsemi, bæði félögum og ein- staklingum án þess að hafa um það mörg orð. Niðjarnir eru orðnir 155 og hafa alla tíð verið stoltir af þessari ein- stöku konu. Það var haldin mikil hátíð í Glaðheimum á afmælis- daginn hennar, 8. ágúst, og þar komu saman svo til allir niðjarnir og aðrir vinir. Amma stóð sig með sóma, þennan dag eins og endra- nær, tók á móti kössum og blóm- um í hundraðatali og var gerð að heiðursborgara Vatnsleysu- strandarhrepps í tilefni dagsins. Amma mín hefur alla tíð verið góð kona, hæglát, grandvör, 180 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.