Faxi - 01.05.1989, Side 30
Skólahiísid sem byggt var við Nýlendu 1910. Skúramir eru seinni tíma Tjöm
byggingar.
Framhald af bls. 175
Hjörleifsson starfaði við Tjamar-
skólann til 1930.
Eftir 1933 var það ljóst að Tjamar-
skólinn gat ekki með góðu móti tek-
ið við öllum nemendunum, sem
vom liðlega 50 þá. Valdimar Össur-
arson, sem varð skólastjóri hér
1930, og hreppsnefnd, sóttu nú fast
á um það að leyfi fengist til að byggja
hér nýjan skóla. Bygging hans var
samþykkt 1935 eftir allmikið bréf
og gagnkvæmar bréfaskriftir milli
skólayfirvalda og hreppsnefndar. í
millitíðiimi var skólinn starfræktur
í tvennu lagi. Það er að segja í Tjam-
arskólanum og Þrastarlundi.
Árið 1937 hófst síðan kennsla í
hinum nýja skóla, sem við köllum
okkar á milli, ,Gamla skóla", reynd-
ar aðeins í hluta hans, því seint sótt-
ist verkið. Þetta vom erfiðir tímar,
efnisskortur til bygginga og inn-
flutningshöft ríkjandi. Sjá má á
skólahaldsskýrslum að Valdimar
hefur verið mikið ffá, því ýmislegt
þurfti að útrétta í Reykjavík fyrir
nýja skólann. Óhætt er að segja að
engar stórar breytingar hafi orðið á
herbergisskipan skólans þessi
fimmtíu ár.
Haustið 1938 var öll starfsemin
komin í hinn nýja skóla og má því
segja að fimmtíu ár séu liðin frá því
að hann tók formlega til starfa. í
skólanum þennan vetur vom 66
böm á aldrinum 7-13 ára í 3 deild-
um. Skólinn byijaði fyrst í október
og lauk seinni hluta aprílmánaðar.
Þá var einnig starffæktur vorskóli
fyrir yngstu nemenduma.
Hér mun ég fara nokkuð fljótt yfir
sögu því hér em heimildir mínar að
mestu skólahaldsskýrslur sem lítið
er oftast að græða á, nema þá tölur
og þess háttar. Einnig má segja að
það sé hálf ankannalegt fyrir mig að
standa hér og fjalla um atburði sem
sum ykkar munið eftir eins og þeir
hafi gerst í gær.
í hinu nýja húsi hófst þá þegar
handmenntakennsla drengja og
stúlkna. Valdimar kenndi drengj-
unum en Jóna Ásbjömsdóttir,
Katrín Brynjólfsdóttir og síðar Þór-
unn Lýðsdóttir leiðbeindu stelpun-
um. Um sund- og leikfimikennslu
er það helst að segja að fyrst er getið
um það á skýrslum árið 1948, að
elstu árgangamir hafi sótt tveggja
vikna sundnámskeið til Keflavíkur.
Áður hafði verið farið að Laugar-
vatni með nemendur. í fyrstu var
Þrastarlundur
Sandgerði