Faxi - 01.05.1989, Qupperneq 31
leikfimi kennd ýmist í stofum eða á
göngum skólans. Um 1948 er leik-
fimikennslan flutt í samkomuhúsið
og var þar til húsa, með nokkrum
hléum, til ársins 1979. Nú hafa
þessar greinar fengið öruggt skjól í
íþróttamiðstöðinni.
Valdimar Össurarson var skóla-
stjóri hér til ársins 1946, en þá flutti
hann sig um set og hóf kennslu við
Melaskólann í Reykjavík. Við af
honum tók Aðalsteinn Tfeitsson, en
hann hafði áður verið skólastjóri
bamaskólans á Súðavík.
Árið 1949 tók unglingadeild til
starfa við skólann og vora þann vet-
ur 16 nemendur í þeirri deild en 70
í bamaskólanum. Um svipað leyti
er getið um matreiðslunámskeið í
skólanum og sérstaklega tekið fram
að það hafi einungis verið fyrir
stelpur.
Næst ber ég niður í skýrslu frá ár-
inu 1954, en þar segir Aðalsteinn:
,,I byrjun skólatíma að loknu
jólaleyfi höfðu nemendur barna-
skólans ásamt nemendum ungl-
ingaskólans álfabrennu og álfa-
dans. Fór ,,álfahátíð“ þessi í aðal-
atriðum þannig fram, að bömin
söfnuðust saman í skólahúsinu og
kœddust þar álfabúningi sínum,
en gengu síðan fylktu liði um götur
þorpsins með blysbera í broddi
fylkingar og síðan að bálkesti mikl-
um er nemendur höfðu hlaðið í út-
jaðri þorpsins. Þar dönsuðu ,,álf-
amir“, um 100 talsins, vikivaka, en
að því búnu héldu þeir til sam-
komuhússins og héldu dansi sínum
áfram þar, en köstuðu þá grfmun-
um. Mikill mannfjöldi safnaðist að
álfafylkingunni og þótti öllum þetta
hin besta skemmtun og rómuðu
mjög framkomu bamanna. . ."
Á áratugnum milli 1950 og 1960
fjölgaði íbúum í Sandgerði mjög ört
og strax 1955 er farð að ræða um
nauðsyn þess að byggja við skól-
ann. Þrengslin vora það mikil að
kenna þurfti piltum handavinnu í
þvottahúsinu í skólastjórabústaðn-
um. Þennan vetur vora nemendur
110 að tölu.
Snemma árs 1957 andaðist Aðal-
steinn Tfeitsson skólastjóri og við tók
Sigurður Ólafsson, sem hafði verið
kennari við bamaskólann í Hafhar-
firði, en áður á ísafiröi.
Sumarið 1958 var byijað að grafa
fyrir granni viðbyggingar skólans
og haustið 1961 var hún tekin í
notkun. Þótti bygging þessi sérlega
glæsileg í alla staði. Nemendur vora
þá um 180 og við skólann störfuðu
fimm kennarar.
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
Allir eiga einhver minningabrot
frá fyrstu áram skólagöngu sinnar.
Mig langar að eyða nokkram orðum
í það að segja frá einu slíku, þegar
ég og félagar mínir jafnaldra voram
að stíga okkar fyrstu spor í skólan-
um. í þá daga kom stundum fyrir að
kennarinn forfallaðist, svona eins
og gengur og gerist. Sigurður skóla-
stjóri hljóp þá í skarðið og sagði
okkur þá iðulega sögu af pilti
nokkram. Sögur þessar vora geysi-
lega spennandi og inn í þær læddi
hann uppeldislegum sannindum,
án þess að við veittum því sérstaka
athygli. Þetta varð að eins konar
ffamhaldssögu og oft óskuðum við
þess að kennarinn yrði nú veikur
næsta dag, þó það væri nú ekki illa
meint, til þess að við fengjum að
heyra framhald sögunnar. Eg held,
þegar ég lít til baka, að hann hafi
samið þær svo til jafnóðum og hann
sagði okkur þær.
I mars 1985 lést Sigurður Ólafsson
skólastjóri, og við tók núverandi
skólastjóri, Guðjón Þ. Kristjánsson.
Það er dálítið skemmtileg tilviljun
að þessi dagur skuli hafa orðið fýrir
valinu, því einmitt í dag, 6. septem-
ber, hefði Sigurður heitinn orðið
sjötugur.
Fljótlega eftir 1970 var ljóst að enn
þyrfti nú að byggja við skólann. Á
þessum áram hafði sveitarfélagið í
mörg hom að líta, m.a. stóðu fyrir
dyram miklar hafnarffamkvæmdir.
Það var ekki fyrr en eftir 1980 sem
einhver hreyfing komst á málin.
Öllum er ljóst sú mikla uppbygging
sem átt hefur sér stað síðustu ár.
íþróttahús, sundlaug og svo hin
glæsilega viðbygging sem er að
komast að fullu í gagnið nú þessa
dagana. Og halda verður uppbygg-
ingunni áffam. Því eins og heyra má
af þessu yfirliti, þá hefur aldrei ver-
ið byijað að byggja fyrr en í óefni er
komið.
Að lokum færi ég skólanum ám-
aðaróskir á þessum tfmamótum og
vona að hann eigi eftir að standa
undir því hlutverki sem honum er
ætlað í samfélagi manna.
Pétur Brynjarsson
FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI
Fjölbrautaskóli Suöumesja
STÖÐUPRÓF
Stöðupróf í ensku verður í stofu 106 kl.
17:00 mánudaginn 4. september og í
dönsku þriðjudaginn 5. september kl.
18:00 í stofu 106 og í vélritun
miðvikudaginn 6. september kl. 17:00 í
stofu 213. Skráning fer fram á skrifstofu
skólans. Gjald fyrir stöðupróf er kr.
1.000.- og óskast gjaldið greitt við
skráningu i prófin.
UPPHAF HAUSTANNAR
Nýnemar eiga að mæta í Iþróttahúsinu
í Keflavík kl. 10:00 fimmudaginn 7.
september.
Eldri nemendur eiga að mæta
föstudaginn 8. september kl. 10:00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl.
08:15 mánudaginn 11. september.
Skólagjald er kr. 4.300.-. Efnisgjald
á verknámsbrautum er kr. 4.000.-.
ÖLDUNGADEILD
Fundur með öldungum, þar sem gengið
verður frá töflu haustannar verður 4.
september kl. 20:00.
Skólagjaldið i öldungadeild er kr.
7.500.-.
Skrifstofa skólans er opin frá kl.
10:00—12:00 og 13:00—16:00. Allar
nánari upplýsingar i sima: 13100
og 13101.
w
FAXI 187