Faxi - 01.02.1996, Qupperneq 3
FAXI FKIíRÍAK 1!)!)6
Fræðasetríð í Sandgerði
Arið 1992 var sett á laggirnar
í Sandgerði merk rann-
sóknarstarfsenii sem átti
ekki sinn líka hér á landi. Starfsem-
in er til húsa í gömlu fiskverkunar-
húsi skamnit frá höfninni mitt í
hringiðu iðandi verstöðvarlífs, en
Sandgerði er ein af athafnamestu
fiskihiifnum landsins. I húsinu er
einnig útibú frá Fiskmarkaði Suður-
nesja, og þar eru líka beitningar-
skúrar. Megin viðfangsefni stöðvar-
innnar eru fjölþjóðlegar rannsókn-
ir á lífríki sjávarbotnsins við Is-
landsstrendur og hafa þær rann-
sóknir nú þegar skilað athyglisverð-
uni árangri. Forstöðumaður stöðv-
arinnar er Guðmundur Víðir Helga-
son.
Um miðjan nóvember s.l. var opn-
að svonefnt Fræðasetur í tengslum við
rannsóknarstofuna og fer sú starfsemi
fram á efri hæð hússins. Hugmyndin er
sú að þarna verði ferðamanna- og
fræðasetur. Sem fyrr er það Sandgerð-
isbær sem er drifljöðurin í þessu starfi,
en fjölmargir aðrir aðilar eiga þar hlut (
að máli, bæði einstaklingar og stofnan-
'r- Sú starfsemi sem þar er fyrirhuguð
er mjög fjölbreytt og hún byggist fyrst
og fremst upp á staðsetningu setursins.
Samstarfsaðilarnir eru m.a. Hafrann-
sóknarstofnun, Náttúrufræðistofnun
og Háskóli íslands svo einhverjir séu
nefndir.
Ágætis aðstaða hefur verið útbúin
við Fræðasetrið, þannig að vísinda-
menn og aðrir áhugamenn geta haft
þar aðstöðu við að gera athuganir og
rannsóknir á lífríkinu, hvort sem um er
að ræða í landi eða í hafinu. Þar er fyr-
irlestrasalur ineð ágætum tækjum,
gistiaðstaða fyrir allt að 12 manns í
einu og ef t.d. er um að ræða stóra
nemendahópa eða aðra hópa, þá er
boðið uppá svefnpokagistingu í sam-
komuhúsinu. Er stefnt að því í framtíð-
inni að á Fræðasetrið komi nemendur
ýmissa menntastofnana til að stunda
þar vettvangsrannsóknir. Er ekki vafi á
því að rnargir eiga eftir að nýta sér þá
ágætu aðstöðu sem þar er.
Einn er sá þáttur við þetla nýja
Fræðasetur sem vert er að gefa sérstak-
an gaum, en það eru þær hugmyndir
sem snúa að almennum ferðamönnum.
í næsta nágrenni við fræðasetrið er að
finna algjöra paradís fyrir áhugamenn
Munið
orkureikningana
Eindagi orkureikninga
er 15. hvers mánaðar.
Látið orkureikninginn hafa forgang
um fuglalíf. Bæði á tjömum og í fjör-
um má sjá og kynnast fjölskrúðugu
fuglalífi og mun Fræðasetrið aðstoða
fólk við að skoða það nánar, m.a. með
skipulögðum skoðunarferðum og
fræðslu. Mun Jóhann Oli Hilmarsson
fuglafræðingur sjá um þann þátt. For-
stöðukona safnsins er Kristín Haf-
steinsdóttir en hún á að baki langt starf
hjá Hafrannsóknarstofnun og Sjávarút-
vegsdeild Háskóla íslands. Við opnun
setursins setti hún upp fjölbreytta sýn-
ingu og var hún mjög fjölsótt af Sand-
gerðingum og öðmm fyrstu dagana
eftir að setrið opnaði. Er ástæða til að
óska Sandgerðingum til hamingju með
þetta frábæra framtak sem á örugglega
eftir að bera nafn bæjarins um víða
veröld.
HH.
VERKALÝÐS- OG
SJÓMANNAFÉLAG
KEFLAVÍKUR
Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80. Opið
mánudaga til fimmtudaga kl. 9-16,
föstudaga kl. 9-15.
Síminn er 421 5777
Hitaveita
Suðurnesja
FAXI 3