Straumar - 01.12.1927, Side 3
STRAUMAR
MÁNAÐARRIT UM KRISTINDÓM OG TRÚMÁL
1. árg.
Reykjavik, í desember 1927
12. tbl.
Jólin þín.
í dimmum kofa birtu bar,
því borinn Jesús Kristur var.
Og þaðan ljósið lýsti frá
og leiddi þá, sem vildu sjá.
Ó, horf þú inn í huga þinn
um hátíð þessa, vinur minn.
Er dyrum lokað, dimt og kalt?
Á dauðinn ríki og hjartað alt?
Þá hef þú bamsins bænamál,
að breytist hjarta þitt og sál
í kvöld við jólaklukknahljóm
úr kofa í bjartan helgidóm.
Svo skíni ljós þitt langt í frá
og leiði þá, sem vilja sjá,
að Jesús fæddur einnig er
við englasöng í hjarta þér.
Þá syngja englar, himins hirð,
í helgri jólanæturkyrð,
um heilög jól í hjarta þér;
þar himnaríki stofnað er.
Helgi Konráðsson.