Straumar - 01.12.1927, Blaðsíða 30
204
STRAUMAR
uni manni, cr tekur inn meðal, sem lœknirinn hefir fyrirskipað,
án þess að efast um, að ráð lœknisins séu viturleg.
12. fyrirlestur. Hjélprœðið (sjónarmið frjálslyndis-
stefnunnar). Við hjálprœði skilja nýguðfrœðingar jákvœðar at-
hafnir, en ekki neikvæðar. Maðurinn frelsast til einhvers, en
ekki frá einhverju. Hann frelsast til að framkvæma það, sem
gert er, fremur en frá afleiðingum hins illa.
Samkvæmt skoðunum rétttrúnaðar-stefnunnar cr frelsunin
óháð vilja mannsins, en frjálslyndis-stefnan trúir því, að mað-
urinn verði sjálfur að eiga sinn hlut í að ávinna sér hana. — Eg
verð að hjálpa til að frelsa sjálfan mig. Eg verð að gera það,
af því að eg get gert það. Mér er ekki meðfæddur neinn sá veik-
leiki, er tálmi mér frá að snúa mér að hinu góða, hvenær sem
eg æski að gera það.
í guðfræðiskerfi nútimans er Jesús ekki talinn vera Guð,
sem ber syndir mínar fyrir mig eða tekur á herðar sér þá
byrði, sem eg ætti að bera. Hann er talinn maður, sem sýnir
mér með lífi sinu, hvernig unt er að sigrast á synd og freisting
og hvernig maðurinn fái liafið sig frá veikleik til styrkleika.
13. fyrirlestur. Opinberunin (sjónarmið íhaidsstefn-
unnar). Mcð þvi að maðurinn þekkir ekki veg sáluhjálparinnar,
verður liann að öðlast fræðslu um, hvað hann eigi að gera til
þess að frcisa sálu sína. — Af þvi að mannlegur skilningur er
myrkri hjúpaður, verður hann að fá frœðsluna frá Guði.
Jtessa fræðslu má eigi efa; þeim ráðum, er hún leggur,
verða menn að fara eftir, jafnvel þótt þau virðist fara í bág við
skynsemi vora.
Opinberun Guðs nær sjaldnast tii manna beina leið. Milli
Guðs og manna eru meðalgangarar, sem flytja boðskapinn.
Gamla testainentið talar um spámennina, Nýja testamentið um
Jesúin. Kirkjan bætir við heilum sæg erkiengla, engla og dýr-
linga; fremst þeirra er María mey.
Mótmælendur telja biblíuna uppsprettu opinberunarinnar.
Mennirnir, sem síðast veita opinberuninni móttöku, hljóta að
vera þiggjendur eingöngu. þeir þiggja og efa ekki. Höfuösyndin
er efinn.
14. fyrirlestur. Opinberunin (sjónarmið frjálslyndis-
stefnunnar). Samkvæmt gömlu skoðuninni opinberar Guð
mönnum sannleikann, og mennirnir biða þess með þolimna'ði,
að þeim verði fræðslan veitt. Samkvæmt nútímaskoðuninni á
maðurinn upptökin.
Fyrir framan oss er óþektur heimur. Hann leggur fyrir oss
gátu, scm vér vcrðum að ráða, hráefni, sem vér eigum að æfa
vitsmuni vora á.
Megin-forsendan i hugsunarhætti nútímans er sú, að alt