Straumar - 01.12.1927, Blaðsíða 10

Straumar - 01.12.1927, Blaðsíða 10
184 STRAUMAR kynsins, verður enginn hólpinn, sem var uppi fyrir hans daga eða deyr án þess að heyra hans getið. Þeir menn hafa því ekki við sömu hjálpræðisskilyrði að búa og vér ; leið guðs með mannkynið er þá orðin önnur og annars eðlis en hún áður hafði verið. Þá er guð orðinn umbreyt- anlegur, starfsaðferðir hans og lög orðin gjörræðisleg og félag heilagra byggist ef til vill á enn öðru síðar. Því að eins er unt að treysta guði, að hann sé óumbreytanleg- ur og sjálfum sér samkvæmur, að sá alvaldur, sem stýrir og viðheldur heiminum sé ekki eitt í dag og annað á morg- un. Samfélag heilagra hlýtur því að byggjast á öðru en tímabundnum skýringum og kennisetningum. En það er ekki nóg að komast að þessari niðurstöðu; vér verðum að leitast við að gera oss nánari grein fyrir hinni jákvæðu hlið málsins. II. Þegar um afstöðu mannanna til guðs og alheimsins er að ræða, eru oftast tekin tvö ólík sjónarmið. Sumir líta eingöngu á öll þau bönd, sem hefta einstaklinginn og gera hann háðan utan að komandi áhrifum. Telja þeir þá vilja mannsins bundinn og ófrjálsan. Forlögunum sé úthlutaö hverjum einum án þess, að hann eigi nokkrun þátt í til ills eða góðs. Maðurinn verður þá magnlaus leiksoppur i höndum æðri valda. Aðrir fara jafnlangt í hina áttina og álíta viljann frjálsan og óháðan og engum böndum bund- inn. Sannleikurinn mun vera mitt á milli. Ef vér athug- um líf mannanna, kemur í ljós, að margir þræðir liggja að lífi þeirra, sem knýta þá við umheiminn. Það er örðugt að ákveða, hvar verk eins endar og annars hefst. Þeir eru svo að segja óaðskiljanlegir eins og dropar í á eða geislar frá sama ljósi. Líf vort ákvarðast ekki eingöngu af nútíð heldur löngu liðinni fortíð. Nokkur hluti af sælu vorri og böli á rætur sínar í lífi forfeðra vorra fyrir þúsundum ára. En þrátt fyrir alt, finnum vér, að maðurinn er sjálf- ráður að einhverju leyti, og því meir sem hann þekkir af lögum tilverunnar, því frjálsari er hann. „Sannleikurinn mun gera vður frjálsa“. Eins og hver einstaklingur tekur

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.