Straumar - 01.12.1927, Blaðsíða 9

Straumar - 01.12.1927, Blaðsíða 9
STRAUMAR 183 ennfremur, að vegur hjálpræðisins sé fundinn og fjöldi manna gangi hann sér og öðrum til tímanlegrar og eilífr- ar farsældar. Þennan hóp köllum vér samfélag heilagra. En hjálpræðið sjálft hlýtur eins og annað að fara eftir settum reglum. Einhver skilyrði hljóta að vera fyrir inn- göngu í samfélag heilagra. Þau skilyrði hefir guð sett með einhverju lögmáli, sem mönnunum er dýrmætt að þekkja. En það lögmál, eins og önnur, mun hafa verið til áður en nokkur mannleg vera hafði hugmynd um það. Með öðrum orðum: Hjálpræðisskilyrðin h a f a h 1 o t i ð að vera þau sömu frá eilífð og þau verða t i 1 e i 1 í f ð a r. „Utan kirkjunnar ekkert hjálpræði", var einu sinni sagt og er reyndar enn. Þá er samfélag heilagra grund- vallað á því, að menn aðhyllist og trúi sérstökum kenn- ingum, sem komið er fyrir í fastmótuðu kerfi. Frá kirkju- þingum miðaldanna má fá góð dæmi þess, hvernig menn voru dæmdir villumenn og jafnvel brendir á báli vegna annarlegra skoðana á kenningum kirkjunnar. Mönnum gekk illa að láta sér skiljast, að um ósönnuð mál hlýtur oftast að verða ágreiningur. Flestar trúarsetningar eru ekkert annað en tilgátur um óþekta hluti, sem að dómi þeirra, sem þær aðhyllast, standa í rökréttu samhengi við það, sem þegar er þekt. En nú getur sumum þótt það eðli- legt, sem öðrum finst fjarstæða, án þess að hver geti sann- fært annan um þá réttu trú. Þess vegna hefir kristin kirkja skifzt í deildir og þess vegna eru margskonar trú- félög í heiminum. Af því hefir leitt, að mörgum hefir fundist, að annaðhvort væri samfélag heilagra aðeins ör- lítill hluti alls mannkynsins, eða, að það væri alls ekki til í vei-uleikanum. En það hefir gengið illa að skera úr, hvaða trúflokkur ætti heitið skilið, og þó hafa menn haldið fast í hugmyndina og fundið, að hún hlyti að eiga við sann- leika að styðjast. En ef hjálpræðið er bundið við það, að maðurinn aðhyllist ákveðna skýringu á einhverju trúar- atriði, er fyrsta skilyrði hjálpræðisins, að maðurinn hafi heyrt þetta trúaratriði nefnt. Ef það er t. d. nauðsynlegt að trúa því, að Kristur hafi greitt syndagjöld mann-

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.