Straumar - 01.12.1929, Blaðsíða 6
180
STRAUMAR
maður hinnar stríðandi kirkju Krists, vinur volaðra smæl-
ingja, boðberi og spámaður risavaxinna hugsjóna, eldleg-
ur eyðandi ranglætis og þjóðfélagslýgi. Hann er vanalega
miðlungsgreindur maður með sæmilegt mannorð, gæddur
mikilli fimi í notkun gamalla orðasambanda, sem eru orð-
in hugsandi mönnum innantóm, og veiklulegri löngun til
þess að vera góður öllum og öllu. Hann mundi aldrei geta
fengið sig til að segja: Vei yður, þjer eiturormar og
nöðrukyn! — nema á þann hátt, að engum gæti dottið
í hug að taka það til sín. Hann mundi aldrei í umboði
drottins síns, þora að fyrirgefa nokkra synd, sem almenn-
ingsálitið dæmir, þó hann vissi, að hún hefði kostað
syndarann angistarnætur og iðrunartár. Því maður, sem
slíkt gerir, á aldrei vísa kosningu í ríkiskirkjusöfnuði.
Hann á í rauninni ekkert víst nema útlegð þess, sem læt-
ur það vera mat sinn og drykk að þjóna sannleikanum,
eins og Jesús Kristur gerði.
Eg get ekki gleymt mönnunum, sem heima sitja á
þessum jólum, þegar klukkunum verður hringt, — þeim
sem drengskap eiga og hæversku til þess að halda kyrru
fyrir, af því að hugur þeirra er ósamþykkur kristnihaldi
voru, og þeim, sem andlegur sljóleiki hefir fært í kaida
fjötra. Eg finn til miklu meiri samúðar við þá, en marga
hina, sem troða sér þar inn, þó að eina kristilega athöfn
þeirra alt árið hafi verið 1 því fólgin að henda krónuvirði
í jólapott einhverrar góðgerðastofnunar.
Eg veit að sumir þeirra, sem heima sitja kenna sér
engis meins, af því að sálir þeirra eru hættar að finna til,
augu þeirra að sjá, eyru þeirra að heyra. Eg veit, að sum-
um er efi og kvöl í hug, og þeir eygja enga leið til and-
legrar hjálpar sér. En eg veit líka, að sumir þeirra unna
Kristi meira en margir, sem segja amen við orðum prest-
anna og, að aðrir eru að leysa með æskunni þau lífsspurs-
mál, sem kii'kjunum þykja of óhrein til þess, að á verði
tekið með klerkahöndum. Eg veit, að sumir þeirra eru
glefsandi vargar með mannhatur í hjai'ta og meiðandi
orð á vöi’um, og að aðrir berjast við ofurefli gegn mein-
um mannanna.