Straumar - 01.12.1929, Blaðsíða 17
STRAUMAR
191
Páli til þeirra Timoteusar og Títusar, og að utan um þær
séu svo bréfin smiðuð, og aukið við þau, en ógjörningur er
að skilja þessi smábréf frá, þó að benda megi á einstöku
setningar og kafla úr þeim t. d. 2. Tím. 4, 9.—2. og 1.
Tín. 5, 23. — Elst bréfanna telja menn 2. Tím, en 1. Tím.
yngst; þó er þetta aðeins tilgáta.
Kringsjá.
Kristur og kirkjukenningarnar, fvrirlestrar og rœður, eftir
Harald Níelsson prófessor. Svo heitir bók, 118 lils. að stœrð, sem
írú Aðalbjörg Sigurðardóttir, ekkja sira Maraldar, hefir gefið
út með styrk úr Sáttmálasjóði. Eru þœr allar guðfræðilegs efnis,
og sýna skoðun Haraldar á ýmsum höfuðlærdómum kirkjunn-
ar. Ræðurnar og fyrirlestrarnir eru átta og eru íyrirsagnir
þeirra þessar: 1. Friðþægingarhugmyndin i Gamla testament-
inu, 2. Friðþægingarhugmyndin í Nýja testamentinu, 3. Frið-
þíEgingarlnigmyndin frá sjónarmiði nútímans, 4. Hvað er að
vera kristinn?, 5. Trúin á Jesúm Krist, Guðs son, i Nýja testa-
mentinu, G. Eitt af vandamálum Nýja testamentisskýringar-
innar, 7. Hvað kennir Kristur oss um dauðann, 8. „Eg vil
fylgja þér hvert sem þú fer“. — Sum þessara erinda hafa áður
birzt í timaritum. -— það er ekki tilætlun mín að skrifa neinn
„ritdóm" um bókina, aðeins benda mönnum á, að í henni koma
fram sömu kostir og öðru því, sem síra Haraldur hcfir skrifað:
mikil lærdómur, skýr og ljós framsetning, fagurt mál og eld-
legur sannfæringarkraftur, til að fylgja réttu máli til sigurs.
það ætti að vera óþarfi að geta þcss, að hverjum guðfræðingi
og hverjum þeim öðrum, sem kynnast vill þeim þáttum kirkju-
kenninganna, sem bókin fjallar um, er nauðsynlegt að lesa
hana. Á frú Aðalbjörg þakkii’ skildar fyrir að koma þessum
erindum út.
Frjálst líf, ræður fluttar í Ommen 1928 eftir ,1. Krishnamurti,
er hók, sem frú Aðalbjörg Sigurðardóttir hefir þýtt og gefið út.
Er mönnum hér nú svo kunnugt um Krishnamurti og upp-
lausn hans á Stjörnufélaginu, að ekki er þörf á að greina það
nánar hér. Aðalefni ræða þessara er, að mönnum beri að lifa
lífi sínu frjálsir af hverskyns drottinvaldi, og leita sannleik-