Straumar - 01.12.1929, Blaðsíða 14
188
STRaUMAR
afnema líkræður í kirkju; þó vafasamt að það tækist með
valdboði.
Því miður hef eg ekki tök á að ræða hér fleiri ein-
stök atriði, en vonandi verða aðrir til að gera það, og
halda máli þessu vakandi héðan af, unz það er vel til
lykta leitt. Sérstaklega vænti eg af öllum frjálslyndum
prestum, að þeir láti hina knýjandi þörf hrinda sér til að
ræða málið, og hika ekki við að fylgja réttmætum kröf-
um til sigurs. Sannleikur og heilindi ættu að vera ein-
kenni presta í starfi þeirra; að það geti orðið, á að vera
brennandi kappsmál vor allra. Takmarkið sé því þetta:
Berum ekkert fram fyrir guð, sem vér getum ekki
lagt oss sjálfa inn í, með lífi og sál, sem flestir af oss.
Komum fram fyrir hann sem látlausast og eðlilegast;
tölum máli þráa vorra og heitustu tilfinninga, og leitum
uppbyggingar í því að vera s a n n i r og h e i 1 i r, að
minnsta kosti í kirkjunni. Til þess að ná því marki, er
vitanlega bezt að vera ekki bundinn af neinum ytri siða-
foiTnum, en ef form verður að vera, þá höfum það eins
látlaust og eðlilegt, frjálst og samkvæmt sannleikanum
og unnt er! Björn Magnússon.
Bibllurannsóknir.
Frh.
Þessalonikubréfin. Borgin Þessalonika (nú
Saloniki) liggur í Makedoniu við enda Vardardalsins og
var hún mikil verzlunarborg í fornöld, ekki síður en nú,
enda liggur hún vel við öllum samgöngum, bæði á sjó og
landi. Páll postuli kom í borgina á 2. kristniboðsferðinni
og dvaldi þar nokkrar vikur. Predikaði hann í samkundu-
húsi Gyðinga, sem voru margir í borginni, og stofnaði
söfnuð með nokkrum Gyðingum og mörgum heiðingjum.