Straumar - 01.12.1929, Blaðsíða 7
181
__________________STRAUMAR
Öllum þessum mönnum óska eg góðs, — óska þeim
gleðilegra jóla. Eg veit, að alls þess, sem ilt er bíður sú
líkn hinst að fá að deyja og hverfa af götu hins góða.
Eg bið, að þeir verði fáir, sem hennar njóta einnar, því
önnur er meiri. Eg veit, að alls þess, sem gott er bíður
sú raun, ,,að hrekjast af háum, en hýsast af þeim smáu“.
Eg bið þess, að þeir verði margir, er það hlutskifti kjósa
sér. Og þess munu þeir biðja, sem kenna samsektar sinn-
ar við synd og ranglæti, en dirfast þó að eigna sér hlut-
deild í björtustu vonum mannkynsins.
Reykjavík, 5. des. 1929.
Sigurður Einaisson.
Handbókarmálið og helgásiðirnir.
Eins og mönnurn mun kunnugt, var skipuð nefnd 5
manna til að endurskoða helgisiðabók íslenzku kirkjunnar
og koma með breytingartillögur við hana, á prestastefnu
árið 1925. Skilaði hún áliti 1927: „Bráðabirgðatillögum“
svonefndum. I niðurlagi þeirra standa þessi tilmæli frá
nefndinni:
„Nefndin vonar, að tillögur hennar verði athugaðar
með velvild og ræddar sem víðast á kirkjulegum fund-
um, og óskar að fá álit sem flestra um þær, bæði presta
og leikmanna, og er þakklát fyrir allar góðar bendingar,
sem til bóta mættu verða, hvaðan sem þær koma“.
Þrátt fyrir þessi tilmæli nefndarinnav er mér grunur
á, að lítið hafi verið starfað frekar í þessu máli, hvorki
af nefndinni sjálfri né utan hennar. Víst er það, að
hljótt hefir verið yfir málinu; hefir því hvorki verið
hreyft siðan á sýnódus né verið getið um, í blöðum, svo
mér sé kunnugt, að það hafi verið rætt á öðrum kirkju-