Frjáls verslun - 01.10.2001, Síða 36
Sigurður Jónsson, framkvœmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, skrifar hér um þýðingu evrunnarfyrir Islendinga ogfœrir rök fyrir
því að evran verði tekin uþþ á Islandi, hvort sem stjórnmálamenn vilja það eða ekki. Mynd: Geir Olajsson
Evran? Framtíðar-
mynt íslands!
Mikið hefur verið rætt og ritað um
evruna í tengslum við stöðuga
verðrýrnun íslensku krónunnar.
Allir sem sjá og skilja vita að krónan
okkar er nú orðin nánast ónýt mynt til
allra nota og er ekki gjaldmiðill sem
nýtur trausts. Seðlabanki Islands hefur
varið töluverðum ijármunum til að
veija krónuna en ekki haft árangur sem
útgjöld.
Vegna hins mikla fórnarkostnaðar
sem fer í að verja krónuna er ljóst að
hún hentar ekki lengur íslensku þjóðfé-
lagi. Þá líta menn til annarra kosta og stöðvast þá helst við
evruna, hinn nýja gjaldmiðil EMU, myntbandalagsins sem
myndað er af 12 Evrópuþjóðum. Evran hefur verið notuð sem
reikningseining í viðskiptum í tæp þrjú
ár, en seðlar og mynt koma fyrst á
markað um næstu áramót.
Þrisvar sinnum meiri viðskipti Menn
eru nokkuð sammála um að eftir útgáfu
seðla og myntar í evrum um næstu ára-
mót muni viðskipti, a.m.k. innan mynt-
bandalagsins, aukast og líklega muni
velmegun aukast þar einnig. Einnig er
talið líklegt að svipaðra áhrifa gæti í
helstu viðskiptalöndum EMU-landanna,
hvort sem þau eru innan ESB eða ekki.
Þekktur fræðimaður í viðskiptafræðum, prófessor Andrew K.
Rose, sem hefur m.a. verið ráðgjafi ríkisstjórnar Svíþjóðar í
málefnum myntbandalagsins, spáir því að aukning í utanrík-
Krónan er nánast ónýt mynt og
nýtur ekki trausts. Margt bendir
til þess að evran verói fyrr eba
síóar tekin upp af atvinnulífinu
á íslandi. Þannig veróur vió-
skiptalífió vió stýrió, ekki stjórn-
málamennirnir.
Eftir Sigurð Jónsson
Brýnt er að stjórnvöld hér taki undir þau sjónarmið samtaka atvinnulífsins að skilgreina
samningsmarkmið Islands vegna viðræðna við ESB um aðild landsins. Upphaf slíkra við-
ræðna við ESB þarf að verða fyrr en seinna því ekki verður undan því vikist að leita lausna
á vandanum sem veik staða krónunnar skapar og leita nýrra sóknarfæra inn á EMU-svæðið.
36