Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2001, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.10.2001, Blaðsíða 37
L • GESTflPENNI FRfllVITIÐflRMYNT ISLflNDS Þó ísland sé eyja, - hefur landið með samningum og aðild að ýmsum samtökum og stofnunum orðið hluti af fjölþjóðlegu viðskiptaumhverfi þar sem neytendur ætlast til að njóta svipaðra kjara. Þetta er vandi fyrirtækja og framkvæmdavalds ríkisins, en um leið áskorun til þeirra sem stjórna málum á hverjum tíma. isviðskiptum inn- an myntbanda- lagsins aukist á milli 10 og 700% og að velferðaraukn- ingin nemi um 20%. Rose varar þó við því að einblínt sé á háar tölur og bendir á að menn eigi líka að huga að mark- tækum áhrifum, þ.e.a.s. að myntbandalög stuðli að auknum viðskiptum og velferð. Hann talar þannig um „raunverulegar og marktækar“ breytingar. Niðurstaða hans er sú, byggð á ólíkum matsaðferðum, „...að lönd með sömu mynt versla meira en þrisvar sinnum meira hvert við annað en lönd með ólíka mynt.“ Meðal atriða sem Rose tekur tillit til er hvort löndin noti sama tungumál, svipaða viðskiptasamninga, búi við skylda menningu, hafi svipað réttarkerfi og sögu o.s.frv. Rose telur að aðild Svíþjóðar að EMU muni líklega leiða til þess að verslun landsins við myntsvæðið tvöfaldist eða jafnvel þrefaldist miðað við núverandi stöðu. Þetta þýddi mikla aukn- ingu í sænskri framleiðslu og velferð auk þess sem verslun myndi aukast gríðarlega. Hann bendir á að verslun vaxi ekki að- eins innan myntbandalagsins heldur einnig við lönd utan þess. Ferðamenn koma með evrur ísienskt þjóðfélag er mjög háð utanríkisverslun, bæði útflutningi á vörum og þjónustu og innflutningi neyslu- og ijárfestingarvara. Mikill hluti vöruútflutnings er til evrulanda og seldur í evrum, en þjón- ustu er e.t.v. algengara að selja í Banda- ríkjadölum. Eins og áður sagði hefur ^ notkun evru í viðskiptum verið algeng ý frá árinu 1999. Telja verður líklegt að frá næstu áramótum muni ferðamenn frá lönd- um, sem nota evru sem sína mynt, fljótlega kreijast þess að verð flugfélaga, hótela, bílaleiga, veit- ingahúsa o.fl. sé gefið upp í evr- um og e.t.v. eykst líka notkun á evrum sem reiðufé við greiðslu reikninga. Evran er verðmeiri mynteining en menn hafa átt að venjast í þeim löndum sem eru að taka hana upp sem sameigin- lega mynt og fólk mun því lík- lega finna að það hefur verð- meiri og öflugri mynt undir höndum þar sem evran er en eldri mynt þeirra var. Ef gengi evrunnar styrkist einnig, sem ekki er talið ólíklegt, þá ýtir það enn frekar undir mikilvægi myntarinnar í augum þeirra sem hana eiga. Verð í evrulönd- unum verður gegnsætt og leiðir eflaust til samræmingar skatta og gjalda þannig að söluverð verði sem líkast í öllum löndun- um. En þetta mun einnig hafa 5QII1S- Ef krónan gengur ekki í endurnýjun Irfdaga, er ekki ólíklegt að atvinnulífið á íslandi muni á næstu 1-2 árum taka upp evru á ís- landi í raun, þar sem nú verður heimilt að færa ársreikninga í erlendri mynt eins og evrum, hvort sem stjórnmálamenn taka opinbera afstöðu til þess máls eða ekki. áhrif í löndum eins og á Islandi þar sem verslun og þjónusta er í sam- keppni við ná- grannalöndin og íslenskir neytend- ur munu kreijast svipaðs verðs og þess sem algengt er í evrulöndum. Þó að Is- land sé eyja, - hefur landið með samningum og aðild að ýms- um samtökum og stofnunum orðið hluti af fjölþjóðlegu við- skiptaumhverfi þar sem neytendur ætlast til að njóta svip- aðra kjara. Þetta er vandi fyrirtækja og framkvæmdavalds ríkisins, en um leið áskorun til þeirra sem stjórna málum á hveijum tíma. Ársreikningar í evrum Ef krónan gengur ekki í endurnýjun lífdaga, er ekki ólíklegt að atvinnulífið á íslandi muni á næstu 1-2 árum taka upp evru á Islandi í raun, þar sem nú verður heimilt að færa ársreikninga í erlendri mynt eins og evrum, hvort sem stjórnmálamenn taka opinbera afstöðu til þess máls eða ekki. 011 notkun evrumyntar, hvort sem er í við- skiptum fýrirtækja, erlendra ferðamanna hér eða íslenskra ferðamanna erlendis, f útgáfu hvers konar kynningarefnis eða með fjölgun evrugjaldeyrisreikninga, mun breyta þeim viðmiðum sem nú eru notuð. Fjölmiðlar munu einnig í vaxandi mæli vísa til evra, m.a. í saman- burði á verði vöru og þjónustu. Að binda íslensku krónuna við evruna, eins og löndin 12 innan EMU hafa gert á undirbúnings- tímanum, væri tilraun til að tengja hag- kerfið EMU, en á þann hátt tæki Island þó ekki þátt í myntbanda- laginu. Upptaka evru er tvímæla- laust þýðingarmeiri aðgerð en að binda eigin mynt við evruna. Brýnt er að stjórnvöld hér taki undir þau sjónarmið samtaka at- vinnulífsins að skilgreina samningsmarkmið Islands vegna viðræðna við ESB um aðild landsins. Upphaf slíkra við- ræðna við ESB þarf að verða fyrr en seinna því ekki verður undan því vikist að leita lausna á vand- anum sem veik staða krónunnar skapar og leita nýrra sóknarfæra inn á EMU svæðið. Oft er nefnt að aðild Noregs að ESB og Dana og Breta að myntbandalaginu myndu valda því að Island gæti ekki staðið utan ESB. Spurning- in nú er hvort Island geti staðið utan ESB og EMU með okkar verðlitlu krónu. Sjálfstæði Islands grundvallast ekki á eigin mynt heldur á samkeppnishæfu atvinnulífi og traustu hagkerfi. Felst skammtímalausn e.t.v. í bindingu krónu við evrunaPSH 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.