Frjáls verslun - 01.10.2001, Side 80
„Roðið okkar er eins og mýksta hanskaskinn og efþað kemst í tísku þá er Ijóst að nýr kafli er að
hefjast í framleiðslunni. Roðið hefur hingað til verið notað mest í aukahluti, töskur, belti og skó
en nú getum við framleitt roð, sem er nógu mjúkt í fatnað. “
vinnslutæknina, sem við segjum engum frá, enda hluti af okkar
verðmætum. En það er fleira, sem hefur þurft að þróa en sjálfa
framleiðslutæknina. Það er heillandi við framleiðslu Sjávarleð-
urs að þar var farið af stað með að framleiða vöru sem engin
eftirspurn var eftir, því að hún hafði ekki verið til áður. „Þegar
við byrjuðum 1995 voru engar upplýsingar til um markaðinn
því að markaðurinn var auðvitað ekki til, þegar varan hafði ekki
verið til. Þetta hefur verið eilifur skóli síðan.“
Friðrik segir að eftir stríð hafi verið reynt að súta fiskroð en
vinnsluaðferðirnar voru allt aðrar en þær sem hann hefur
þróað. Einhveijir muna kannski eftir að hafa séð sútað stein-
bítsroð, hart og ósveigjanlegt, iyrir margt löngu, en sú vara
minnir í engu á það ótrúlega efni, sem fiskroðið frá Sjávarleðri
er. „Manni þótti kannski merkilegt að geta sútað roðin skamm-
laust, en núna er markaðshugmyndin enn merkilegri. Roðið
okkar er eins og mýksta hanskaskinn og ef það kemst í tísku
þá er ljóst að það er nýr kafli í framleiðslunni. Roðið hefur hing-
að til verið notað mest í aukahluti, töskur, belti og skó en nú
getum við framleitt roð, sem er nógu mjúkt í fatnað.“
En snjöll framleiðsla sérstæðrar vöru kemur fýrir lítið ef
ekki er hægt að selja hana. Þar kemur
sérþekking Sigrúnar á hátískuheim-
inum til sögunnar. Hún gerði sér grein
fyrir eðli hans og vissi að athygli ungra
hönnuða, er ryðja tískubrautirnar, og
hátískuhúsanna verður helst náð með
framsækinni vöru. „Það skemmtilega
við að vinna með Friðriki er að hann er
svo skapandi og alltaf tilbúinn til að fara
fram úr sjálfum sér, bæta og prófa. Það
nýjasta er að honum hefur tekist að
þróa roð með rúskinnsáferð sem þolir
vatn,“ segir Sigrún og brosir að þeirri
tilhugsun að það þurfi að meðhöndla
roð sérstaklega til það þoli aftur vatn.
Friðrik er ekki síður ánægður með
samstarfið við Sigrúnu. „Samstarfið við
hana er ákveðinn þáttur í að við höfum
náð því sem náðst hefur og hlutirnir litu
öðruvísi út hjá okkur ef hún væri ekki
með. Það er fátt í markaðssetningu, sem
við höfum ekki prófað og um það væri
hægt að skrifa heila bók. I svona sér-
hæfðum bransa þýðir ekkert að ætla sér
að hafa einhvern markaðsráðgjafa í
Reykjavík. Sigrún nálgast hlutina úr
annarri átt.“
„Leiðin inn í hátiskuhúsin liggur í
gegnum ungu og frjóu hönnuðina,“ út-
skýrir Sigrún. „Það þýðir ekki að fara
beint inn í hátískuhúsin með eitthvað
sem er alveg nýtt og óreynt. Hátísku-
húsin fylgjast náið með því sem ungu
hönnuðirnir eru að gera. Þegar þeir
ungu hafa boðið upp á eitthvað um tíma
má álykta sem svo að þarna séu að
skapast nýir tískustraumar og þá vaknar áhugi þeirra stóru. Til
að ná athygli stóru húsanna þarf að fá ungu hönnuðina til að
nota efnið.“
Með þetta í huga hefur Sigrún unnið að því markvisst undan-
farin ár að kynna fiskroðið meðal ungu hönnuðanna. Hún riijar
upp að þegar hún hitti Friðrik í fyrsta skipti á leðursýningu í
París var hann að sýna henni roðin sín í kaffistofunni. Þá bar
strax að þrjá unga hönnuði, sem vildu allir ólmir kaupa roð og
nota. Sigrún sá um að þeir fengju það sem þeir vildu og það
hefur skilað sér. „Roðið er dýrt og við höfum ekkert lágmark á
pöntunum, einmitt til að gera ungum hönnuðum kleift að nota
roðið,“ undirstrikar hún. Það er einmitt með nýstárlegri og
framúrstefnulegri vöru sem athygli hátískuhúsanna hefur verið
náð. „Við vitum að við erum með „heitt“ efni því ungu hönnuð-
irnir og þeir sem eru mest skapandi nota roðið,“ segir Sigrún.
Með góðu sambandi við unga hönnuði og augun á því sem
þeir eru að gera áttar Sigrún sig á hveiju þeir hafa mestan
áhuga á. „Það skiptir engu máli þó framleiðslan sé langt í
burtu. Það eina sem þarf er einhver sem hefur skilning á mark-
aðnum og getur verið tengiliður milli hans og þeirra í Sjávar-
80
Nú hefur Friðriki tekist að þróa roð með rúskinnsáferð sem þolir vatn