Ármann - 01.02.1961, Blaðsíða 4
Aðalfundur 1960
Fyrsti aðalfundur samkvæmt hinum nýju
lögum var haldinn laugardaginn 26. nóv. s. 1.
í félagsheimilinu. Fundarstjóri var Gunn-
laugur J. Briem og fundarritari Guðbrandur
Guðjónsson. Formaður, Jens Guðbjörnsson,
las skýrslu fráfarandi stjórnar, sem ritari
hennar, Ingvar Sveinsson, hafði undirbúið af
mikilli kostgæfni. Ber skýrslan það með sér,
að starf félagsins er nú orðið geysilega viða-
mikið, sem sézt bezt á því, að á árinu iðkuðu
hátt á áttunda hundrað manns íþróttir í fé-
laginu. Þá las formaður einnig reikninga fé-
lagsins í fjarveru gjaldkera. Bera þeir með
sér, að hagur félagsins fór batnandi á árinu.
I stjórn fyrir næsta ár hlutu þessir kosn-
ingu: Jens Guðbjörnsson var endurkjörinn
formaður í 35. sinn. Varaformaður Hallgrímur
Sveinsson, gjaldkeri Gunnar Eggertsson, rit-
Jens
Guðbjörnsson
formaður
Armanns.
ari og blaðafulltrúi Ingvar Sveinsson, form.
húsnefndar Þorsteinn Einarsson, spjaldskrár-
ritari Rut Guðmundsdóttir og fundaritari
Þorkell Magnússon.
Varastjórn: Stefán Gunnarsson, Sólon Sig-
urðsson og Kristín Jóhannsdóttir.
Endurskoðendur voru endurkjörnir Stefán
G. Björnsson og Guðmundur Sigurjónsson.
fyrirvara í dagblöðum bæjarins, og er fundur lögmæt-
ur, ef löglega er til hans boðað. Atkvæðisrétt á aðal-
fundum dcildanna hafa allir skuldlausir félagar, 16 ára
og eldri. Þó er einstökum deiidum hcimilt að ákvcða
atkvæðisrétt fyrir félaga yngri en 16 ára.
Dagskrá aðalfundar iþróttadeildanna skal vcra sem
hér scgir:
1. Formaður deildar flytur skýrslu yfir störf deildar-
innar á liðnu ári.
2. Gjaldkcri leggur fram endurskoðaða rcikninga
deildarinnar.
3. Kosin deildarstjórn og 3 varamenn. Sbr. 6. gr.
4. Onnur mál.
Fundarsköp séu hin sömu og á aðalfundi féiagsins,
og vísast til 14. gr. um störf aðalfundar.
8. gr.
Vanræki einhver deildin að halda aðalfund fyrir
tiisettan tíma, skal aðalstjórn félagsins bcita sér fyrir
því við stjórn viðkomandi deildar að það verði gert.
Láti dcildin ekki skipast við það, skal aðalstjórnin
boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.
9- gf-
Hver íþróttadcild skal halda nákvæma spjaldskrá
yfir félaga deildarinnar.
10. gr.
Eignir íþróttadeildanna eru sameign félagsins. Hætti
einhver íþróttadcild störfum, er stjórn dcildarinnar
skylt að afhenda cignir hennar til aðalstjórnar félags-
ins. Taki deildin ckki til starfa að nýju innan þriggja
ára, renni eignir hennar endanlega í sjóð aðalstjórnar
félagsins. Verðlaunagripir og verðmæt skjöl skulu vera
í vörzlu aðalstjórnar.
n. gr.
Stofnun nýrra félagsdeilda heyrir algjörlega undir
aðalstjórn.
12. gr.
Ársgjöld mcðlima íþróttadeildanna skulu ákvcðin
árlega á aðalfundi dcildanna. 10% af ársgjöldum
deildanna renni til aðalsjóðs félagsins. Gjöld styrktar-
félaga hverrar deildar rcnni óskipt til dcildarinnar.
2
ÁRMANN