Ármann - 01.02.1961, Síða 31
ÞORSTEINN EINARSSON:
^rakklaudsfor 0ltmu\élagsius
/Qrmauus sumartb 1959
Þann 22. júlí 1959 héldu 7 stúlkur og 9 piltar
á vegum Glímufélagsins Ármanns til heim-
sóknar á þjóðhátíð Kelta á Bretogneskaga í
Frakklandi. Árlega, síðustu helgi júlímánað-
ar, efna samtök Kelta í Frakklandi til hátíð-
ar í borginni Quimper úti á Bretogne-skaga.
I ár fór þessi hátíð fram dagana 23.-26. júlí.
Á hátíðum þessum, Fétes des Cornouaille,
safnast fólk af keltneskum uppruna saman og
klæðist þá keltneskum þjóðbúningum. Margt
er til skemmtunar en mest ber þó á þjóð-
dönsum, þjóðbúningasýningum, þjóðlaga-
söngvurum og sýningum eða keppni í kelt-
neskum fangbrögðum. Hátíðir þessar eru víð-
frægar fyrir glæsibrag.
Ástæðan fyrir því að þessi flokkur Glímu-
félagsins Ármanns fór í heimsókn á þessa
hátíð Keltanna er sú, að 1957 komu hingað
þrír Frakkar í sambandi við það, að þá voru
20 ár liðin frá því að „Pour-Qua-Pas“ fórst
vestur við Mýrar. Einn þessara manna var
blaðateiknari að nafni R. Y. Creston. Hafði
hann skömmu fyrir komu sína hingað lokið
við að skrifa bók um keltnesk fangbrögð.
Einhvers staðar hafði hann heyrt um Glímu
og vildi þá nota tækifærið til þess að kynnast
henni. Hitti Greston Þorstein Einarsson, í-
þróttafulltrúa að máli og fékk hjá honum
ýmsar upplýsingar um Glímu og nokkrir
glímumenn úr Ármanni sýndu Frökkunum
glímu. Creston varð undrandi, er hann sá
glímumennina taka brögð, sem hann þekkti
frá hinum keltnesku fangbrögðum. Lét hann
þá í Ij ós þá ósk, að glímumenn kæmu í hcim-
sókn á hátíð Kelta suður Bretogneskaga.
Frá nefnd þeirri, sem sér um þjóðhátíð
Keltanna, barst svo 1957 boð til Glímufélags-
ins Ármanns. Sumarið 1958 var eigi hægt að
þiggja heimboðið. Á s. 1. hausti endurnýjuðu
Keltarnir boð sitt og var þá tekið til við æf-
ingar undir þessa Frakklandsför. Forstöðu-
nefnd hátíðarinnar spurðist fyrir um það,
hvort glímumennirnir gætu ekki sýnt þjóð-
dansa, kynnt ísl. þjóðbúninga og sungið ísl.
þjóðlög. Var lögð mikil áherzla á, að flokk-
urinn gæti kynnt þetta þrennt ásamt glím-
unni. Vegna þessa voru fengnar stúlkur til
þess að æfa nokkra ísl. þjóðdansa með glímu-
mönnunum. Kenndi Helga Þórarinsdóttir
dansana. Einnig bjó flokkurinn sig undir að
syngja nokkur ísl. þjóðlög. Kenndi Helgi Þor-
láksson yfirkennari flokknum söng, sem
Valdimar Örnólfsson stjórnaði. Þátttakendur
í þessari Frakklandsför Glímufélagsins Ár-
manns voru: Valdimar Örnólfsson, fararstjóri
og túlkur; Gunnlaugur J. Briem, fulltrúi
Glímufélagsins Ármanns og í fararstjórn
flokksins: Helga Þórarinsdóttir, stjórnandi
þjóðdansa; Rúnar Guðmundsson og kona
hans Þórunn Einarsdóttir; Ólafur Guðlaugs-
son; Sigmundur Ásmundsson; Eysteinn Þor-
valdsson; Sveinn Guðmundsson; Greipur
Sigurðsson; Hafsteinn Þor\raldsson og kona
hans Ragnhildur Ingvarsdóttir; Iris Ingi-
bergsdóttir; Edda Skúladóttir; Sæunn Magn-
úsdóttir; Inga Á. Guðmundsdóttir.
Kjartan Bergmann Guðjónsson, sem er
glímukennari félagsins, gat ekki farið vegna
starfa sinna sem skjalavörður Alþingis, en
sumarþing var háð um þetta leyti. Ætlunin
var að flokkurinn sýndi í þrem bæjum og þar
á meðal hafði verið rætt um hinn gamla fiski-
bæ Paimpol, en frá þeim bæ sigldu aðallega
frönsku skúturnar á Islandsmið hér fyrr meir.
Með för þessari var hafin sú viðleitni, að
glímumenn heimsæktu þjóðir, sem viðhalda
ÁRMANN
29