Ármann - 01.02.1961, Síða 32

Ármann - 01.02.1961, Síða 32
FRAKKLANDSFARAR fornum fangbrögðum, sem cinum hinum elsta menningararfi. Mun glíman án efa sóma sér vcl við hlið annarra fornra fangbragða og máske munum við komast nær lausninni - hvaðan íþróttin er runnin. Mánudaginn 20. júlí sýndi flokkurinn fyrir fulltrúa franska sendiráðsins, stjórn ISl, ÍBR og Glímufélagsins Ármanns. Stjórn flokksins þakkaði þar styrki, sem hann hefur hlotið frá Menntamálaráðuneytinu og íþróttaforust- unni. Þann 7. ágúst kom flokkurinn heim úr ferð sinni til Bretogneskaga í Frakklandi. Var ferðin í alla staði hin ánægjulegasta og mót- tökur mjög alúðlegar. Hátíð Keltanna var fjölþætt og nýstárleg fyrir Islendingana. Slíkar hátíðir hafa verið haldnar um all- mörg ár, og leggur fólk af Keltneskum upp- runa sig mjög fram um að fjölmenna og þá sem allra flest í þjóðbúningum síns héraðs. Quimper er ekki stór borg. En talið er, að á þessum hátíðisdögum komi þangað um 200 þús. gestir úr hinum ýmsu héruðum Bret- ogne skagans, sem hvert hefur sinn sérstaka þjóðbúning og sérstöku þjóðdansa. Markmið hátíðahalda þessara er að viðhalda fornum keltneskum venjum, búningum, fangbrögðum, dönsum, hljóðfæraslætti og fleiru. Var mjög skemmtilegt að sjá hina ólíkustu þjóðbún- inga, marga mjög skrautlega og þjóðdansa af ýmsu tagi, sem sýndir voru frá hverju héraði. Einnig sýndu sameiginlegir flokkar Skagans, um 1000 manns, og um 1200 manna hljóm- sveit lék undir og gekk um götur borgarinn- ar, að sjálfsögðu í þjóðbúningum, og léku á sekkjapípur sínar. Otlendir gestir á hátíðinni voru að þessu sinni þjóðdansaflokkar frá Spáni (nánar til- tekið Baskar frá San Sebastian), Póllandi, Belgíu og Rúmeníu auk íslenzka flokksins. Þessir flokkar voru fjölmennir og sýndu mjög vel samæfða þjóðdansa hver frá sinu landi. íslenzki flokkurinn hafði 2 sýningar á hinu feiknamikla útileiksviði, sem reist hafði ver- ið á auðu torgi í miðri borginni. Þar komust fyrir milli 20 og 30 þúsund manns í sæti og var hvert rúm skipað. Enn fremur gengu all- ir flokkarnir í skrúðgöngu um götur borgar- innar, sem voru troðfullar af fólki og fagn- aðarlæti mikil. Þá var einnig sýnt fyrir sjúkl- inga á þrem sjúkrahúsum í borginni, en þarna virðist vera miðstöð læknavísindanna á Skaganum, eftir stærð sjúkrahúsanna og fjölda sjúklinga að dæma. Flokkurinn sýndi íslenzka þjóðdansa og 7 glímumenn sýndu glímu. Enn fremur voru sungin nokkur ís- lenzk þjóðlög. Var mjög góður rómur gerður að sýningum þessum, eins og eftirfarandi blaðaummæli bera með sér. QUEST-FRANCE 25/7. „Hinir íslenzku vinir okkar komu áhorfendum Cornouaille- hátíðahaldanna skemmtilega á óvart með hinum ágætu sýningum sínum í gær. Með ís- lenzka fánann í fararbroddi gekk hópurinn fram á sýningarpallinn og hóf síðan skemmt- an sína mcð fögrum íslenzkum söngvum, sem 30 ÁRMANN

x

Ármann

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ármann
https://timarit.is/publication/692

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.