17. júní - 01.06.1924, Blaðsíða 4
20
17. JÚNÍ
Sveinn Björnsson, situr við skrifborð 'silt á skrifstofu sendiherra í Khöfn.
oss ekki með öllu, þó að hann hverfi
nú aftur heim til íslands, og taki par
við hinum fyrri starfa sínum. Vjer vit-
um að í honum eigum vjer talsmann,
sem, ef á reyndi, Iegði oss lið í orðum
og gjörðum.
Oss tekur það sárt, að hann verður
að yfirgefa oss hjer, en vjer vitum að
það muni verða nóg fyrir hann að gera
á íslandi, nú í viðreisnar- og framsókn-
arbaráttu íslensku þjóðarinnar, með þá
reynslu og pekkingu, sem hann hefur
til að bera. Sv. B. verður ekki að eins
saknað af ísl. hjer í landi, heldur öllum
þeim, sem honum hafa kynst hjer.
E>að er rjett, sem Jón Krabbe sagði
í ræðu, er hann flutti í samsæti því, er
íslendingar hjeldu sendiherra 24. þ. m.
að það verður örðugra fyrir ettirkom-
anda hans, því Sv. B. er ljúfmenni og
enginn leitaði
svo ráða hans
eða hjálpar,
að hann fengi
ekki úrlausn.
Vjer áttum
fyrir nokkru
tal við em-
bættismann í
utanríkisráða-
neytinu hjer
og kvaðst
hann mundi
sakna Sv. B.,
enda taldi lík-
legt, að erfitt
yrði að finna
mann í þá
stöðu, er hefði
hæfileika S. B.
Vjer óskum hr. Sveini Björnssyni
góðrar framtíðar á íslandi, og æfinlega
munum vjer minnast hans af þakklát-
um huga fyrir starf hans í þarfir ætt-
lands vors.
Til útsölumanna blaðsins.
Til þess að hægt verði að halda á-
fram útgáfu blaðsins, er það ósk vor
til allra þeirra, sem hafa með höndum
sölu á blaðinu, að þeir sendi oss ná-
kvæma tölu á kaupendum í bygðarlagi
sínu og sömuleiðis skilagrein fyrir blöð
af fyrri árgangi. Öll reglusemi er hið
nauðsynlegasta lífsskilyrði blaðs þessa,
eins og hvers annars fyrirtækis. Utaná-
skrift útgefanda er: Porf. Kristjánsson
Engtoftevej 2, 3. sal, Khöfn V. Sendið
skilagrein þessa með fyrstu ferð!