17. júní - 01.06.1924, Síða 5
17. JUNI
21
Driðja ráðuneyti Jóns Magnússonar
EFTIR langa og harða fæðingar-
hríð tók hið þriðja ráðuneyti hr-
Jóns Magnússonar sæti á ráð-
herrabekk þjóðþingsins ísl., laugardag-
inn 22. mars, kl. 12 á hád. Eftir að
forseti Nd. hafði lýst fundinn settan og
lesið upp dagskrána, gaf hann hinum
nýja forsætisráðherra orðið.
Forsætisráðherra reisti sig i stól sín-
um og lýsti því, hverjar ástæður lægju
til pess, að hann talaði úr þessu sæti,
hverja hann hefði valið með sjer í
stjórn landsins og stefnu ráðuneytisins.
Um stefnuatriði stjórnarinnar fór þó
forsætisráðh. fáum orðum. Hann gat
þess þó, að ráðaneytið mundi Ieggja
alla áherslu á að spara, en það mundi
þó naumast verða komist hjá því, að
auka eitthvað skatta til ríkisins í bili,
til þess að fá sem fyrst jafnvægi á
fjármálin. E>ó varð ekki sjeð á ræðu
forsætisráðh., hvaða leiðir hann helst
kysi að fara til að auka tekjur ríkissjóðs.
Dað virðist vera einfalt mál að spara,
þegar að skera á niður á útgjaldaliðn-
um holt og bolt, og pyngju ráðherr-
anna er engin hætta búin; hitt er
meiri vandi, að halda í horfinu áfram
og spara þó.
Á hin svo nefndu sociölumál mintist
ráðherra ekki. Að þvi leyti er þetta
ráðuneyti eins og hin fyrri. Dað er
hugtak, sem íslenskir stjórnmálamenn
þekkja lítið til. Ekki veik ráðherra
heldur að neinum umbætum til lands
eða sjávar, gaf þeim mönnum engar
vonir um vinnu eða samúð frá stjórn-
inni, sem nauðugir hafa orðið að beygja
sig undir ok vinnuleysisins, 2 til 3 ár-
in síðustu. Ráðh. virðist ekki heldur
hafa haft húsnæðisekluna í huga, eða
hin illu húsakynni í kaupstöðum og
sveitum; þau mál skifta stjórnina engu.
Eða finna menn í ræðu forsætisráðh.
nokkuð vikið að öðrum heilbrigðismál-
um, svo sem byggingu Iandsspítala?
Nei! Dað ríkir þögn um öll þessi mál
sem þó eru hin mestu áhugamál allra
þeirra stjórnmálamanna, sem vilja láta
telja sig nýta stjórnmálamenn.
— Vjer viljum vekja athygli íslenskra
stjórnmálamanna á því, að það er að
birta af nýjum degi á himni stjórnmál-
anna, degi, sem boðar frið meðal þjóð-
anna og jafnrjetti meðal stjetta hinna
einstöku þjóða. Dað rofar fyrir þessum
degi líka á íslandi og fyr eða síðar
býður sól þessa dags öllum íslenskum
mönnum og konum faðminn, mjúkan
og ylríkan, er brosandi fellur í skaut
hans, og vei þá hverjum þeim, sem
ekki hefur verið með í baráttunni og
tekið þátt í bæninni um að þessi dag-
ur mætti renna upp.—
Dað er of snemt að spá nokkru um
framtakssemi þessa þriðja ráðuneytis
Jóns Magnússonar, en stefnuskrá þess
lofar engu öðru en sparnaði, og fyrsta
sparnaðartilraunin — fækkun ráðherra
og þing annaðhvort ár — var felt, eins-
konar skírnargjöf til stjórnarinnar!
En til þess að sýna að stjórninni sje
alvara með sparnaðartilraunir sínar,
hafa forsætisráðh. og fjármálaráðherra
ákveðið að fara utan og er þá Magnús
Guðmundsson einn heima.
Sönn fyrirmynd!