17. júní - 01.06.1924, Síða 16
32
1 7. JÚNÍ
Langt værre end Havis er hjertets is
som spærrer os pligtens vej.
FSr den magt i et folk, er det vist pá forlis,
og vársolen smælter den ej.
Men den strále varm
som nár ind i barm
fra heltenes offerstol,
smælter sjælens is
og paa underfuld vis
tændes ufedte slægter en sol.
... Islendingar sem kynst hafa Marius
Kristensen, vita að hann ann landi okkar
og p]óö, og á liðnum tímum, er stjórn-
arfarsdeilurnar stóðu sem hæst meðal
Dana og íslendinga, var hann meðal
þeirra er ávalt gættu rjettar og sann-
leika, hver sem í hlut átti. Hann var
einn þeirra, er fann pað sem skyldu
dönsku pjóðarinnar, ekki einungis að
unna íslandi fulls sjálfstæðis, heldur
vildi hann eftir föngum bæta f>au brot,
er fáviska og skammsýni hafði látið
dönsku einveldisherrana brjóta á móti
íslendingum.
Flærðarlaus og óhræddur sagði hann
oft frá ræðustólnum löndum sínum til
syndanna, en stundum líka okkur ís-
lendingum fulla meiningu sína, er hon-
um fanst, að við hefðum unnið til þess.
Við, sem þekkjum ást dr. Marius
Kristensens á landi okkar og mentun að
fornu og nýju, og sem vitum líka, að
hann er í grein sinni einna fróðastur
maður í Danmörku, höfum oft óskað
þess, að honum og íslensku þjóðinni
auðnaðist nánari kynni hverju af öðru,
og ef hann heimsækti einhverntíma
„Norðureyjuna“, sem hann hefur svo
oft dreymt um, og enn oftar sýnt kær-
leika í verki, þá ætti hann að vera góð-
ur gestur og kærkominn. F. A. B.
17. JÚNÍ. 6 blöð á ári. Kostar:
árg. 3 kr., einstök blöð 50 aura. Ritstj.
Engtoftevej 2, 3. sal. Afgreiðslumaður
í Reykjavík: Úlrich Hansen, Aðal-
stræti 8.
Leiðrjetting.
Hr. ritstjóri!
Prófessor dr. Valtýr Guðmundsson
undrast yfir því, í hinni vinsamlegu
grein um bók mína Islands Lovsang, í
síðasta tbl. af „17. JÚNÍ“, að eg skuli
(s. 13) nota orðin: „þetta norska kvæði“
um „Geisla" Einars Skúlasonar. E>ar-
með hefi jeg viljað segja, að kvæðið
væri um menn og málefni innan norsku
þjóðarinnar og kirkjunnar, en hefi auð-
vitað aldrei eitt augnablik viljað bera
á móti því, að það tilheyri íslensku
bókmentunum, og að það í þeim skiln-
ingi sje íslenskt kvæði. Detta sjest
eirinig á titli bókarinnar og samheng-
inu. Við að lesa setninguna aftur, virð-
ist mjer að sá skilningur á orðunum
liggi næst. En jeg sje þó að þau hafa
getað misskilist og nota því tækifærið
til að leiðrjetta þennan misskilning.
Arne Möller.
DANSK-ISLANDSK KIRKESAG heitir
blað, er fjelag með sama nafni gefur
út hjer i Danmörku. í þessu blaði er
ýmiskonar fróðleikur um menn ogmál-
efni innan íslensku kirkjunnar.
Ritstjóri: Þorfinnur Kristjánsson.
Prentað hjá S. L. Möller,
Kaupmannahöfn. umt