Morgunn - 01.06.1997, Side 25
S.R.F.H. 50 ára
^ThnS
Ék^A/ARf'^
Merki S.R.F.H., leiknað af Guðlaugu
Elísu Kristinsdóttur.
lög hafa verið raddsett á þá
lund, að allir gætu tekið þátt í
söngnum.
Þessi söngur, af öllum sung-
inn af hjartans einlægni og
hugans fögnuði, hefur samein-
að sálimar og ef til vill opnað
þeim sýn til ljóssins landa að
tjalda baki.
Hér hafa margir stutt og
leiðbeint með undirleik í tím-
ans rás eða með því að gefa
hinn rétta tón og má í því sam-
bandi nefna Sigfús Halldórs-
son, Guðna Þ. Guðmundsson, Gróu Frímannsdóttur,
Þórð B. Þórðarson, Konráð Bjarnason og nú, vegna
orgelleiks hin síðustu árin, Huldu Runólfsdóttur.
Henni og fyrrnefndum og ónefndum, færum við
þakkir af heilum huga.
Ekki er úr vegi að geta þess, að tengsl við önnur
sálarrannsóknafélög hafa aukist á hinum síðari árunt
með sameiginlegum ráðstefnum og heimsóknum, sbr.
Akranes og Keilavík.
Félagsmerki: Eftir að Guðlaug Elísa hóf störf í félag-
inu, gerði hún skömmu síðar teikningu, er gæti verið
fyrirmynd að merki félagsins. Var tillaga þessi hin
prýðilegasta og var samþykkt sem merki Sálarrann-
sóknafélagsins í Hafnarfirði og eru auglýsingar frá fé-
laginu svo og fundarboð, einkennt með merki þessu.
Heiðursmerki: Þá gaf Guðlaug Elísa, til minningar
um mann sinn, Hafstein Björnsson, borðfána í fjölda
eintaka með merki félagsins, þar sem getið er form-
MORGUNN 23