Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Page 42

Morgunn - 01.06.1997, Page 42
Sálarrannsóknahreyfmgin... sem hefur verið lunginn úr starfi SRFÍ undanfarin ár og áratugi eða annarra sálarrannsóknafélaga á land- inu. Alls ekki. Það gleður mig mjög að í gegnum all- ar þrengingarnar sem hreyfingin hefur ratað í undan- farna áratugi, þá hafi þessi þáttur í starfseminni hald- ist nánast óbreyttur. Og að sumu leiti jafnvel betri en nokkurn tímann fyrr. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafnmikil og blómleg einkamiðilstímastarfsemi hjá SRFÍ og einmitt nú. Sá árangur er ekki síst að þakka fráfarandi forseta félagsins, Gunnari St. Ólafssyni, sem sl. tvö ár gegndi forsetastarfi SRFÍ með miklum röskleika og mjög faglegum vinnubrögðum á þessu sviði. Gæði þeirra margra eru að vísu alls ekki sam- jafnandi við það sem þótti sjálfsagt áður fyrr. Rannsóknaþátturinn og upplýsingastarfið á og ætti alltaf að vera í fyrirrúmi. En betur má ef duga skal eins og fyrr sagði. Rann- sóknaþátturinn og upplýsingastarfsemin samfara honum hefur á sama tíma næstum farið alla leið nið- ur á núllstigið. Og það án þess að nokkur ætlaði sér það. Og það líka án þess að nokkurn tíman, hafi ver- ið greitt atkvæði um það af félagsmönnum. Þetta bara gerðist svona. Slíkir hlutir gerast stundum í ár- anna rás þegar menn sofna á verðinum. Versti óvinur sálarrannsóknahreyfingarinnar er gagnrýnisleysið á eigin verk sem og skortur á vilja til að horfa lengra, hærra og að meta þá hluti kalt sem við höfum í höndunum á hverjum tíma. Við erum með gull og gimsteina í höndunum í dag sem er sam- bandið við aðra heima!! En samt er nánast enginn rannsóknaþáttur í gangi í allri hreyfingunni! Og enn minni fræðsluþáttur (ef undan er skilin kannski starf- 40 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.