Morgunn - 01.06.1997, Page 48
Sálarrannsóknahreyfingin...
og eftirsjá oft. Úr því væri hins vegar hægt að draga
með fullt af miðilsfundum á markaðsverði. Og þess-
vegna einstaka sinnum á líkamningafundum á mark-
aðsverði, eftir því sem fjárhagur og forgangsröð ætt-
ingjanna segði til um.
2. Lækningar að handan yrðu daglegt brauð. Tíðni
lækninga að handan sem og kraftaverka ykist
stöðugt. Svo mjög að þegar flestir þættir þess flókna
ferlis sem í gang færi/fer þegar þessi kærleiks-/guð-
lega-orka streymir tii okkar þá yrði slík starfsemi lík-
lega á endanum megin uppistaðan í heilbrigðiskerfi
jarðarinnar. Og menn geta rétt ímyndað sér hrapið í
kostnaðinum við heilbrigðiskerfi Vesturlanda við
slíka breytingu. í dag lætur nærri að aðeins íslenska
heilbrigðiskerfið kosti okkur um 40 milljarða á ári
(um 40-þúsund milljónir á hverju ári, á hverjum 365
dögum sem framhjá líða!)
3. Sviksemi, lýgi, olbeldi eða önnur siðferðileg
óhreinindi minnkuðu stöðugt, og hyrfu á endanum
þar sem fljótlega fáir eða engir hér í heimi gætu stað-
ið í slíku. Ein helsta ástæðan fyrir því væri sú að fólki
yrði kennt að sjá það á áru viðkomandi hvort hann
skrökvaði eða ekki. Og ekki síður þegar sífellt betra
sambandi yrði komið á við hinn óendanlega stóra og
innihaldsríka upplýsingabanka handanheimanna, að
hægt væri að sjá nánast alla þessa hluti sem aðra í
þjóðfélaginu og í'á greiningu á þeim. Hér á jörðu yrði
því um næstum því algerlega gegnsætt þjóðfélag að
ræða hjá okkur. Þ.e. allir vissu nánast allt um alla, ef
írá yrðu skilin nokkur mjög persónuleg mál sem
hægt yrði að loka fyrir öllum nema verndurum sínum
að ofan (s.s. flest ástarmál og önnur slík mjög per-
46 MORGUNN