Útvarpstíðindi - 31.01.1944, Page 7

Útvarpstíðindi - 31.01.1944, Page 7
EGGERT BENÓNÝSSON: Hvernig starfar útvarpið? LEIÐRÉTTIN G. Síðasta málsgreinin í síðasta hefti Útvarpstíðinda hefur brenglast. Rétt er greinin þannig: Hér hefur eingöngu verið minst á tíðni, en ekki öldulengd útvarpsstöðv- anna, enda þótt hið síðara sé algengara í daglegu tali. En þetta skiftir ekki miklu máli. Með öldulengdinni er átt en með tíðninni, hversu margar öldurn- ar eru á hverri sekúndu, og þar sem útvarpsöldurnar berast með 300 miljón metra hraða á sekúndu, rná alltaf finna tíðninni í 300 miljón, og á sama hátt má finna tíðnina með því að deila öldu- lengdinni í 300 miljón. Tökum til dæm- isis útvarpsstöð, er útvarpar með 1500 metra öldulengd, 300 000 000:1500 er 200 000, tíðni slíkrar útvarpsstöðvar er því 200 000 rið á sekúndu, eða, eins og venjulegra er að segja, 200 kílórið. FAREINDAICENNINGIN Áður eu útvarpsviðtækið og starf- serni þess, er tekin til meðferðar, þarf að kynna lesendum nokkur undirstöðu- atriði, sem nauðsynlegt er að þekkja, til þess að geta skilið eðli viðtækisins. Eitt af þessum undirstöðuatriðum er fareindirnar og eðli þeirra. Samkvæmt kenningum efnafræðinn- ar eru öll efni, hvort sem þau eru föst, fljótandi eða loftkend, sett saman af sameindum (Molecules). Sameindirnar eru aftirr myndaðar af frumeindum (Atoms). Þegar um frumefni er að ræða, er hver sameind aðeins ein frum- eind, en í samsettum efnum eru í sam- eindunum frumeindir frá þeim frum- efnum er efnasambandið mynda. I slík- um sameindum eru frumeindirnar mjög mismunandi margar, og fer það eftir því, um hvaða efnasamband er að ræða. Samkvæmtj fareindakenningunni er hver frumeind sjálfstæð rafmagnsheild, þar sem jafnmikið er af jákvæðu (pósi- tívu) og neikvæðu (negatívu) rafmagni. Jákvæða rafmagnið er kyrsett og fast- bundið frumeindinni, en surnt af nei- kvæða rafmagninu, myndar sjálfstæðar einingar, sem nefndar eru fareindir (Electrons). Fareindir þessar eru á sí- feldri hreyfingu innan frumeindarinn- ar. Reikna þær eftir ákveðnum braut- um umhverfis kjarna hennar, slíkt og reikistjörnurnar umhverfis sólina. Jákvætt rafmagn dregur að sér nei- kvætt rafmagn,.og þar sem kjarni frum- eindarinnar er hlaðinn jákvæðu raf- magni, heldur hann fareindunum á brautum sínum. Eins og áður er sagt, þá er nákvæm- lega jafnmikið af jákvæðu og neikvæðu rafmagni í hverri frumeind, sem er í eðlilegu ástandi, en veri hún fyrir áhrif- um frá jákvæðri rafhleðslu, til dæmis frá rafal eða rafhlöðu, þá getur þessi já- kvæða rafhleðsla dregið til sín fareindir frá frumeindinni. Við það raskast jafn- vægið í henni, þar sem jákvæða hleðslan verður stærri en hin neikvæða. Úr þessu reynir frumeindin að bæta, mcð því að draga til sín fareindir frá nálægum frum- eindum, og þær aftur frá nágrönnum sínum, og þannig koll af kolli. Á þennan hátt berst rafstraumur eftir leiðurum. Það liggur í augurn uppi, að þess lausari sem fareindirnar eru í frumeind- unum, þess minni orku þarf til þess að flytja rafstrauminn eftir efninu. Eir og ÚTVARPSTÍÐINDI 183

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.