Útvarpstíðindi - 31.01.1944, Blaðsíða 14

Útvarpstíðindi - 31.01.1944, Blaðsíða 14
ÞÆTTIR ÚR ÚTVARPSERINDl FRÚ AÐALRJARGAR SIGURÐARD. llíkisútvarpið hefur sýnt mér þann heiður að bjóða mér að flytja erindi um starfsháttu þess og koma fram með aðfinningar, ef ég vœri ekki ánægð. Eg vil þá fyrst og fremst taka það fram, að ég ætla ekki að neinu verulegu leyti að taka ein- staka dagskrárliði til umræðu. Mér hefur aldrei dottið í hug að gera þá kröfu til útvarpsins, að allt, sem farið er með þar, sé við mitt hæfi. Þvert á móti tel ég það eina aðalskyldu þess að koma svo víða við og hafa upp á svo margt að bjóða, að eitthvað sé fyrir alla. Vitanlega getur það valdið erfiðleikum á heiroilum, að sumir vilja loka fyrir einhvern dagskrárlið og aðrir ekki, en ég get ekki séð, að útvarpið geti úr því bætt, það verður að vera einkamál heimilanna. Aftur á móti tel ég útvarpinu bera skylda til að afla sér tryggingar fyrir því, að sæmilegt mál sé á þvi, sem flutt er í útvarpinu, svo að sjálft ríkisút- varpið verði ekki til þess að spilla málfari Jjjóð- arinnar. Vil ég í þessu sambandi benda á, að þaö er blátt áfram ófært, að flámæltir og hljóðvilltir menn flytji útvarpserindi. Skólar landsins hafa tekið hér upp harða baráttu oí því skyni að út- rýma þessu leiða málfarsfyrirbrigði úr tungu ])jóð- arinnar. Ríkisútvarpið, sem er mest sótti skóli þjóðarinnar,, má ekki skerast hér úr leik. Íslendingassögur, íslenzkt mál og þulir. I sambandi við þetta vil ég þá láta í ljós alveg sérstaka ánægju með tvo dagskrárliði, sem teknir hafa verið upp ekki alls fyrir Iöngu. Það er lest- ur Njálu og Spurningar og svör um íslenzkt mál. Ég þekki mörg heimili, þar sem Islendingasögurn- ar liafa aldrei verið lesnar, en nú vill heimilisfólk- ið ekki með nokkru móti missa af Njálulestrin- um. Með skýringum dr. Einars 01. Sveinssonar opnast þarna áreiðanlega mörgum nýr heimur bókmennta, sem þeir höfðu ekki kunnað að meta. Næsta sporið verður vonandi að menn fara sjálf- ir að lesa sögurnar okkar. Sama er að segja um spurningarnar og svörin hjá Birni Sigfússyni. Ég hef orðið vör við, að margir hafa lært af þeim tímum ýmislegt um íslenzkt mál, sem ekki gleym- ist uftur vegna þess, hversu skemmtilega er með efnið farið. Aðeins eitt enn í sambandi við einstaka dag- skrárliði get ég ekki varizt að nefna. Það er um lestur kvæða í útvarpinu. Það er sjálfsagt ekkert hægt við því að segja, ]>ó að skáld lesi upp sín eigin kvæði þannig, að þau að minnsta kosti vinni ekki við það. Ilitt finnst mér alveg óþarfi af út- varpinu, að Iáta menn eða Ieyfa þeim að lesa upp kvæði eftir okkar beztu skáld, t. d. Einar Bencdiktsson, þannig að þau stórskemmist í með- ferðinni. Við höfum ekkert að gera með kvæða- upplestur í útvarpinu, nema því aðeins að það sé gert af list, að minnsta kosti verður röddin að vera skýr og áherzlur sæmilegar. Hvað mundi söngelska fólkið segja ef ég og mínir líkar færum að syngja í útvarpið, en til upplesturs kvæða verður líka að gera alveg sérstakar kröfur. Ekki er hægt að tala um útvarpið almennt án þess að minnast á ]>ulina. Þó er nú svo fyrir að þakka, að sem stendur virðast allir nokkurnveg- inn ánægðir með þá, og er þá mikið sagt. Starf þulsins er bæði vandasamt og vanþakklátt og það verð ég að játa, að oftast hefur mér gramizt við útvarpið í sambandi við það starf, og ]>á helzt i sambandi við fréttalesturinn. Hef ég líka orðið vör við það á ferðum mínum um landið, ekki sizt upp til sveita, að fréttirnar, allar tegundir þeirra, eru ]>að, sem fólkið leggur mesta áherzlu á að njóta. Veltur þá allt á þvi, að málrómur þuls- ins sé góður, og að hann hafi kynnt sér svo efnið, að liann geti farið með það vel og skynsamlega. En, sem sagt, nú er fréttalesturinn mjög sæmi- legur og stundum ágætur. Raddir lcvenna og afstaðan til ltonunnar. Ég kem þá að því atriðinu, þar sem aðallega hafa orðið árekstrar milli min og útvarpsins, en það er í sambandi við afstöðu þess til kvenna og hve litið áhrifa ]>eirra hefur gætt við útvarp- ið. Afstöðuna til konunnar virðist mér mega marka á tveimur mjög nýlegum dæmum úr fréttalestri innlendra frétta. Þjóðkunnur maður átti fimmtugsafmæli. Útvarpið sagði frá því að minnsta kosti tvisvar sinnum, að hann væri son- ur ákveðins manns, sem búið hefði á tilteknum stað, móðirin var aldrei nefnd á nafn. Ég lieyrði 190 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.