Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Qupperneq 3
Jón Norðfjörð
segir frd starfi sínu
d Akureyri og í
Hafnarfirði
I ágústferð Brúarfoss frá Kaup-
mannahöfn til Reykjavíkur árið 1937,
kom í farþegahópinn sólbrenndur
maður, hár og grannur, svarthærður,
klæddur ljósri skyrtu ermalausri, og
hafði um hálsinn rauðan klút, sem
hékk í þríhyrnu niður á herðar. Hann
stakk nokkuð í stúf við hina herrana,
sem á skipsfjöl stigu, og streyttust
jakkaklæddir með flibba upp undir
höku. Það var sólheitt þennan dag
» og farþegar voru á þiljum, meðan
skipið skreið út gáralaust Eyrarsund.
Þá greip sólbrenndi maðurinn strengja
hljóðfærið sitt, settist á lestarkantinn
og hóf að leika og syngja. En farþeg-
arnir tylltu sér í námunda og horfðu
dreymnum augum til vesturs, þar sem
tígulsteinahúsin, hvít með rauðum
þökum, stungu sér eitt eftir annað inn
í blámistraðan skóginn á Sjálands-
ströndinni, sem fjarlægðist við hvern
skrúfusnúning Brúarfoss. Þessum upp-
tekna hætti hélt leikarinn, hvenær
sem veður leyfði, — á Norðursjónum,
— í Leith, og fyrsta áfangann út á
Atlantshafið. Þessi rómantíski farand-
söngvari skapaði hlýlegt umhverfi, —
jafnvel á söltum sænum, og varð hann
vinsælasti ferðafélagi.
Þetta var norðlenzki leikarinn Jón
J. N. sem próf. Turman í Landafræði og ást.
Norðfjörð, nýkomnn frá Svíþjóð, en
þar hafði hann leikið hlutverk í sögu-
legri sýningu á vegum Gautaborgar.
En veturinn áður var hann nemandi
við Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn. Ég hafði ekki séð hann
áður, en mundi eftir leikaramynd af
honum, þar sem hann dregur annað
augað í pung og er hinn tvíræðasti á
svip. í kynningu ber hann ekki tví-
ræðan svipinn. Hann er hýr og alúð-
legur, ”alltaf í góðu skapi”, eins og
hann segir sjálfur, og dálítið hlédræg-
ur við blaðamenn, sem hann óttast
að hafi of margt eftir sér. — ”Ég vil
ekki láta hafa eftir mér mikið hrós
um mig sjálfan”.
Jón Norðfjörð er einhver athafna-
mesti leikari og leikstjóri norðanlands.
Hann hefur nú, fertugur að aldri, leik-
ið 60 hlutverk og haft leikstjórn á 30
leikritum, þar í taldir nokkrir einþátt-
ungar. í vetur dvelur hann í Hafnar-
firði á vegum leikfélagsins þar, ann-
ÚTVARPSTÍÐINDI
139