Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Blaðsíða 5
STARFSMANNABLAÐ
REYKJAVÍKUR
ÚTGEFANDI:
STARFSMANNAFÉLAG REYKJAVÍKURBÆJAR
III. árg. September 1940 2. tbl.
Eftirl aunasjóður bœjarins.
Eins og kunnugt er, er sú skipun á
eftirlaunasjóðsmálum starfsmanna bæj-
arins, að bæjarsjóður og stofnanir bæj-
arins annast alla iðgjaldagreiðslu til
sjóðsins. Ber bæjarsjóður því allan veg
og vanda af sjóðnum, og hafa starfs-
menn bæjarins ekki aðra íhlutun um
stjórn hans, en þá, að þeir ltjósa tvo
menn í stjórn hans á móti þremur kjörn-
um af bæjarstjórn. Bæjarsjóður og
stofnanir bæjarins greiða nú 6% af
samanlögðum launum fastra starfs-
manna sem tillag til sjóðsins, og er fé
þetta ávaxtað hjá bæjarsjóði. Tekjur
sjóðsins eru, auk tillagsins, vextir af
innistæðu sjóðsins hjá bæjarsjóði og er
það að vísu af sjóðnum öllum, því ann-
ars staðar en á bæjarreikingnum er
sjóður þessi ekki til.
Þegar Tryggingarstofnun ríkisins var
sett á laggirnar og ýmsir eftirlaunsjóðir
hlutu viðurkenningu Tryggingarstofn-
unarinnar, varð starfsmönnum bæjarins
það strax ljóst, að þeir ættu með fullum
fétti aðgang að undanþágu um greiðslu
lífeyrissjóðsgjalds, svo framarlega sem
Eftirlaunsjóður þeirra væri talinn gild-
ur að lögum. Það var því sótt ærið fast
af starfsmönnum bæjarins að bæjar-
stjórn fengi úrskurð Tryggingarstofn-
unar ríkisins um viðurkenningu á Eftir-
launasjóði bæjarins. Loks á síðastliðnu
hausti sótti bæjarráð um þessa viður-
kenningu, en fékk það svar, að fullnægja
þyrfti vissum ákvæðum áður en viður-
kenningin fengist. Hér við situr, því
ekki er vitað, að bæjarráð hafi sótt mál
þetta lengur eða gert nauðsynlegar ráð-
stafanir til þess að fá sjóðinn viður-
kenndan.
Velflestar hindranir í götu þess, að
fá Eftirlaunsjóð bæjarins viðurkenndan
af Tryggingarstofnun ríkisins, mætti í
rauninni draga saman í eitt: Sjóðurinn
er aðeins til á pappírnum. Til er að vísu
staðfest reglugjörð um sjóðinn og bæj-
arsjóður er sem einkalántakandi úr
sjóðnum að fullu ábyrgur fyrir honum.
Talið er að þessi umbúnaður sé ekki
nægilega tryggur til þess að losa starfs-
menn bæjarins við allar skyldur við Líf-
eyrissjóð. Starfsmenn bæjarins hafa