Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Blaðsíða 15
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
27
Tillögur um blaðið.
Með allri virðingu fyrir ritstjórn
Starfsmannablaðsins vildi ég mega setja
fram nokkrar aðfinnslur við ritstjórn-
ina. Mér finnst ritstjórnin líta frekar
á að blaðið sé til fyrir hana sjálfa, held-
ur en okkur starfsmennina. Efni blaðs-
ins hefir verið of þurrt. Það er náttúr-
lega ágætt að fylgjast með í launamál-
inu og öllum hinum málunum, sem hefir
þurft að skjalfesta í blaðinu með ,,álit-
um“ og ,,greinargerðum“ og laga- og
reglugjörðavafstri, en blaðið þarf líka
að flytja eitthvað af „lifandi stoffi“,
svo slengt sé dönsku. Jólablaðið var
ágætt, því þar var grein Maríu Maack
um sumarferðalagið eins og grænn
,,óasi“ í eyðimörkinni. — Maður má víst
ekki verða skömmótt, því ritstjórnin
svarar öllum aðfinnslum með því að
segja, að þetta sé okkur sjálfum að
kenna. Við getum skrifað miklu meira
í blaðið en við gerum, og þetta er að
nokkru leyti rétt. Þó ritstjórarnir séu
allir þrír bráðvelgefnir menn, þá er ekki
víst að þeir viti hvað fellur í ,,kramið“
hjá hverjum og einum og hvað menn
helzt vilja sjá í blaðinu. Við eigum þess
vegna að leggja eitthvað að mörkum
líka og kasta ekki öllum okkar áhyggj-
um upp á ritstjórana. Þó finnst mér,
að þeir megi svipast um eftir skemmti-
legra efni í og með í blaðið. Hvernig
væri ef blaðið segði meira um stöðu-
veitingar hjá bænum eða segði frá trú-
lofunum og giftingum í ,,stéttinni“ eins
og Símablaðið gerir? Svo mætti hafa
eitthvað sérstakt fyrir kvenfólkið, ef
vildi, og ekki sakaði þó sagt væri frá
smáskrítilegum atvikum. — Ég veit
að ritstjórnin mun segja, að þetta þurfi
Jón Jónsson
lögregluþjónn frá' Laug lét af störfum
1. sept. s.l. — Allt frá því að Jón frá
Laug gerðist lögregluþjónn fyrir sjö ár-
um, tók hann mikinn þátt í félagslífi
St. Rv., enda átti hann á tímabili sæti
í stjórn félagsins. Þegar lögregluþjónar
velflestir tóku sig út úr og sögðu sig
úr St. Rv., hélt Jón tryggð við félagið,
enda leit hann svo á að starfsmönnum
bæjarins væri fyrir beztu að auka sam-
heldnina, heldur en spilla henni. Þegar
Jón frá Laug hverfur nú að öðrum störf-
um, vill Starfsmannablaðið nota tæki-
færið til að þakka honum vel unnin störf
í þágu félagsins og óska honum allra
heilla í framtíðinni. *
allt að koma utan að frá, þó eittlivað
kunni hún að geta lagt til sjálf. Ef það
er rétt — nú þá er bara að gera það.
Ykkar Einlæg.