Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Blaðsíða 14
26
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
Gasstöðin 30 ára.
í júlímánuði s.l. voru liðin rétt 30 ár
síðan Gasstöð Reykjavíkur tók til
starfa, en 1. september fyrir 30 árum
var í fyrsta skipti kveikt á götuljósun-
um hér í bæ. Var mikið um dýrðir í
bænum, þegar gasljósin voru kveikt í
stað olíuluktanna gömlu, sem bæði voru
fáar og lýstu illa niður fyrir sig. —
Þessa 30 ára afmælis hefir hvergi verið
minnzt, nema hvað tilviljunin hefir gert
afmælið minnisstætt og leitt í ljós, hve
götulýsingin er okkur dýrmæt, því af-
mælið bar upp á svo að segja sama tíma
og myrkva átti Reykjavík vegna hér-
veru brezks setuliðs. — Myrkvuninni
var afstýrt, en götuljósin eru okkur
kærari eftir en áður.
Gasstöð Reykjavíkur er yfirlætislaus
stofnun. Hún hefir þó fært bæjarbú-
skapnum ærnar tekjur á undanförnum
árum. Stendur hún enn á mjög góðum
fjárhagslegum grundvelli, þar sem hún
hefir löngu borgað stofnkostnað. Notk-
un gass fer þó minnkandi ár frá ári í
hlutfalli við notkun rafmagns til suðu
og má því búast við að Gasstöðin hafi
lifað sitt fegursta, einkanlega eftir að
hitaveitan tekur til starfa og orka fæst
til rafsuðu handa öllum bæjarbúum.
Vegna þess ástands, sem skapazt hefir
af ófriðnum, hefir notkun gass færst
í aukana í bráð og veldur þar miklu um
dýrleiki rafeldunartækja.
Verkefni fyrir Gasstöðina verða í
framtíðinni mörg hin sömu og verið
hafa, þó ástæður kunni að breytast.
Með þrengdu athafnasviði verður þó að
sjálfsögðu dregið úr rekstrinum, og hef-
ir það þegar komið í ljós, þar sem fækk-
að hefir verið starfsmönnum Gasstöðv-
arinnar. Er það tilætlunin að aðrar bæj-
arstofnanir, einkanlega Rafmagnsveitan
og ef til vill Hitaveitan, taki við þeim
starfsmönnum, sem ofaukið verður hjá
Gasstöðinni.
Annars er forsaga Gasstöðvarinnar í
stuttu máli þessi: Haustið 1908 fékk
bæjarstjórn tilboð um að setja á stofn
gasstöð í bænum frá þýzku firma, Carl
Francke í Bremen. Hafði áður verið
bollalagt um gasstöðvarbyggingu og
enda rafmagnsstöð, sem íslenzkt félag
vildi taka að sér. Félag þetta gafst upp
á fyrirætlunum sínum og var þá tilboði
hins þýzka firma tekið. Stóð í nokkru
stappi um val á stað fyrir stöðina, eins
tóku sig upp þrætur um rafmagnsstöð,
unz samningur um byggingu gasstöðv-
ar var endanlega samþykktur á fundi
bæjarstjórnar 17. júlí 1909. I september
það sama ár var byrjað á byggingu
stöðvarinnar við Rauðará og að leggja
gaspípur í göturnar og var haldið áfram
þannig, að hún var fullbúin í júlí 1910,
og hafði kostað 370—380 þús. kr. Þessi
stofnkostnaður er nú að fullu greiddur
og hefir stöðin skilað afrakstri öll árin
nema hin fyrstu.
Fyrst framan af rak hið þýzka firma
gasstöðina sjálft, eða til ársins 1916.
Vegna ófriðarins gat firmað ekki hald-
ið rekstrinum áfram. Tók þá bærinn við
honum að fullu og öllu og hefir rekið
gasstöðina síðan.
Forstjórar Gasstöðvar Reykjavíkur
voru fyrst í stað þýzkir menn, R a t k e
frá 1910—1916 og Borchenhagen
frá 1916—1919, en 1919 varð B r y n -
jólfur Sigurðsson forstjóri
hennar og hefir hann gegnt því starfi
síðan með stökustu árvekni og dugnaði.
L. S.