Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Blaðsíða 13
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
25
Jón Rafnsson sjötugur.
Jón er fæddur að Hamri í Austur-
fljótum í Skagafirði 24. júlí 1870. Dvald-
ist hann í Fljótum þar til hann var 30
ára, en fluttist þá til Sauðárkróks. Þar
stundaði hann ýmsa vinnu, bæði á sjó
og landi, þar til hann árið 1907 fluttist
til Reykjavíkur, og hefir dvalið hér síð-
an. Árið 1892 giftist hann Sigríði Felix-
dóttur frá Mel í Þykkvabæ. Hún and-
aðist 1931. Hér í bæ stundaði Jón ýmsa
vinnu, þar til hann árið 1919 var ráðinn
starfsmaður hjá bænum við sorphreins-
un, og gegndi hann því starfi til ársins
1938, að hann lét af störfum vegna
heilsubilunar.
Jón Rafnsson er einn af stofnendum
St. Rv., og hefir alltaf verið mjög áhuga-
samur félagsmaður og tillögugóður,
enda er hann sérlega gætinn og grand-
var í öllum háttum sínum. Ég kynntist
Jóni fyrst í verkamannafélaginu Dags-
brún.
t" Ólafur Jónsson
f. lögregluþjónn lézt að heimili sínu 16.
júlí s.l. — Ólafur Jónsson fóddist 10.
júlí 1869 í Neðra-Nesi í Stafholtstung-
um, sonur Jóns Stefánssonar bónda og
konu hans, Mörtu, f. Stephensen. Gegndi
Ólafur lögregluþjónsstarfi í Reykjavík
frá 16. marz 1906 til 1. sept. 1939, er
hann lét af störfum á aldurstakmörkum.
— Ólafur var heldur hlédrægur maður
um öll félagsmál og var þó félagi í St.
Rv. til síðustu stundar. —
Ólafur var tvíkvæntur. Með seinni
konu sinni, Valgerði Einarsdóttur, d.
22. maí 1914, átti hann þrjú börn, og
lifa af þeim dóttirin, Marta Ingibjörg,
ein, sem öll hin síðari ár annaðist heimili
þeirra feðgina. *
Jón Rafnsson er góður drengur og
góður félagsmaður, og fylgist mjög vel
með öllu starfi St. Rv. og vill heill þess
í hvívetna. Ágúst Jósefsson.