Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Blaðsíða 9

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.09.1940, Blaðsíða 9
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 21 Hjálparstarfsemi St. Rv. Þar sem vel hefir rætzt úr þeim aðal- málum, sem félagið hefir beitt sér fyrir að undanförnu, væri ekki úr vegi, að félagsmenn færu að athuga, hvaða verk- efni félagið ætti að hafa með höndum í framtíðinni. Það er bæði nauðsynlegt og gagnlegt, að félagið hafi innan sinna vébanda einhverja starfsemi, sem tengi saman hugi allra félagsmanna á þann hátt, að þeir sjái sér hag í því að vera í félag- inu. Því menn eru yfirleitt svo gerðir, að þeir eru tregir til að bindast félags- legum böndum um hugsjónirnar einar saman, heldur vilja þeir hafa einhverj- ar áþreifanlegar hagnaðarvonir af því að vera í félagslegum samtökum. Því miður ber allt of mikið á því hjá ýmsum starfsmönnum, að þeir hafa ekki enn skilið hvað St. Rv. hefir fyrir þá gert frá fyrstu byrjun, eða ekki gert sér það ljóst, að margt af því, sem þeim hefir orðið til hagsbóta, væri kannske ógert, eða að ýmsu leyti óhagstæðara fyrir þá, ef félagið hefði ekki verið til, og mætti þar til nefna mörg dæmi. En þess ætti ekki að þurfa, ef menn gæfu sér tóm til að hugsa um þau mál, sem þegar hafa verið leidd farsællega til lykta fyrir atbeina félagsins. Á fundum hefir verið minnst á það, að nauðsynlegt væri, að félagið héldi oftar fundi, og að eitthvað væri gert til þess að gera fundina skemmtilega, svo að þeir yrðu fjölsóttari, og að fé- lagsmönnum gæfist á þann hátt tæki- færi til þess að kynnast hver öðrum. Þetta út af fyrir sig er gott, það sem það nær, og sjálfsagt fyrir félagsstjórn- ina að gera sitt til, að fundirnir verði aðlaðandi fyrir félagsmenn. En áhugi félagsmanna þarf að vera viðtækari en að ná aðeins til þessa þátt- ar af félagsstarfinu. Menn verða að líta lengra fram í tím- ann. Fara að hugsa um hvort við get- um ekki komið á fót innan félagsins ein- hverri hjálparstarfsemi fyrir þá félags- menn, sem verða fyrir verulegu heilsu- tjóni eða öðrum óhöppum. Á síðari árum hefir hugsunin um að tryggja fólk gagnvart ýmsum áföllum orðið að veruleika. Menn geta tryggt sig gagnvart eldsvoða, sjúkdómum, slysum, elli og örorku. Og menn geta jafnvel innan skamms tryggt hús og heimili gegn jarðskjálfta og loftárás- um. En þrátt fyrir allt þetta koma fyrir ýms atvik, sem koma mönnum svo á kné, að þeir geta ekki af sjálfsdáðum eingöngu rétt sig úr kútnum. Þeir verða því að leita til vina og kunningja um aðstoð, sem ekki er þó alltaf auðfengin þegar svona stendur á. Mér hefir komið til hugar, hvort ekki væri hægt að stofan innan félagsins hjálparsjóð, sem félagsmenn gætu leit- að til, ef þeir þyrftu á fjárhagslegum stuðningi að halda vegna aðsteðjandi örðugleika, sem stafa af langvarandi sjúkdómi, slysi eða dauðsfalli í fjöl- skyldunni. Með skjótri og góðri hjálp mætti oft bæta svo úr þessum örðug- leikum að þeir yrðu þolanlegir, en yrðu að öðrum kosti mjög tilfinnanlegir um langan tíma. Um fyrirkomulag á þessari hjálpar-

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.