Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Side 7

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.09.1940, Side 7
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 19 Frístundir í stað yfirvinnutíma. í samþykkt um launakjör starfs- manna bæjarins frá 1. apríl 1939 segir, að ekki skuli greiða sérstaklega fyrir aukavinnu, heldur skuli gefa frí í stað- inn fyrir greiðslu til þeirra starfsmanna, sem vinna aukavinnu. Ákvæðið er mjög óljóst og úr vöndu að ráða, hvernig úr- skurða skuli frístundir í stað yfirvinnu- tíma. Hefir þetta valdið erfiðleikum í sumum starfsgreinum, eins og t. d. hjá slökkviliðinu, þar sem yfirvinnutímar hafa safnazt fyrir hjá mönnum, án þess að hægt væri að gefa tilsvarandi fjölda frítíma í staðinn. Það er eitt af mörgu, sem launareglugjörð fyrir starfsmenn bæjarins þarf að kveða á um, hvernig fara skuli með yfirvinnutíma. Vér erum þeirrar skoðunar, að yfirvinna geti ver- ið þess eðlis, að ekki komi til greina að frítímar komi í greiðslustað fyrir hana. Hitt er annað mál, að svo getur staðið á, að það sé hentugt fyrir báða aðila, starfsmanninn og bæjarstofnunina, að einhver minniháttar en nauðsynleg yfir- vinna sé ,,afplánuð“ með frídögum í rétt- um sjóðinn, jafnframt auknum sltyld- um. En jafnvel þó engu væri breytt um fyrirkomulag eftirlaunamála starfs- manna bæjarins, er það knýjandi nauð- synlegt að viðurkenning fáist á sjóðn- um, því hvorugur aðilji, bærinn og starfsmenn hans, geta látið þar við sitja, að það sé opinberlega véfengt, að Eftir- launasjóður bæjarins sé fullkomlega jafngild stofnun og eftirlaunasjóðir ein- stakra fyrirtækja eða stétta. L. S. um hlutföllum við dagkaup og yfir- vinnukaup. Annars er öll eðlileg yfir- vinna þess efnis, að það er hvorttveggja fyrir beztu, starfsmanninum og starfi hans hjá bænum, að fullt endurgjald komi fyrir hana. Eru þar til þrjár leiðir: 1. Full greiðsla yfirvinnukaups. 2. Frídagar með stundaf jölda í sam- ræmi við yfirvinnukaup, sem ann- ars hefði verið greitt, og 3. Greiðsla fyrir yfirvinnustundir eins og um dagvinnustundir hefði verið að ræða, en frítímar fyrir mismuninn á dagkaupi og yfir- vinnukaupi. Ef greitt er fyrir yfirvinnu á einhvern þann hátt, sem hér hefir verið nefnd- ur, og sú aðferð valin í hvert sinn, sem hentar bezt eftir atvikum, þá ætti hverj- um yfirmanni bæjarstofnunar eða starfsgreinar að vera vorkunarlaust að tryggja þetta tvennt: 1: að yfirvinna sé ekki unnin að óþörfu, og 2: að starfsmaðurinn haldi óskertum kröftum til nauðsynlegrar dag- vinnu. Til þess að sýna hvernig önnur bæj- arfélög hafa leyst úr vandamálum þess- um, skal hér þýdd launasamþykkt bæj- arráðsins í Esbjerg frá 24. okt. 1938. Esbjerg er bær á stærð við Reykjavík, svo að dæmið er nærtækt. Samþykktin er á þessa leið: 1. Við öll meiriháttar störf (sem tek- ur mánuð eða meira að leysa af hendi) skal gera yfirvinnustundir upp á hverri viku og leggja saman innan mánaðar- ins. Ef þá hafa verið unnar 8 yfirvinnu-

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.