Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Qupperneq 11

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.09.1940, Qupperneq 11
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 23 Maríus Olafsson. Á þessu hausti kemur út ljóða- bók eftir Maríus Ólafsson verzlun- armann og skáld, sem nú um nokk- urt skeið hefir verið starfsmaður á skrifstofu borgarstjóra. — Starfs- mannablaðið telur sér feng að því, að geta birt lesendum blaðsins sýn- ishorn af kveðskap Maríusar. Raun- ar hefir blaðið áður birt kvæði eftir Maríus, en bæði kvæðin, „Sumar- dagur“ (í 4. tbl. fyrra árg.) og kvæðisbrotið ,,Sjósókn“ í þessu tbl., gefa góða hugmynd um kveðskap hans. — Öllum vinum og kunningj- um Maríusar má vera það fagnaðar- efni, að fá nú tækifæri til að eign- ast ljóð hans samankomin í e'nni bók, en mörg þeirra hafa áður birzt í blöðum og tímaritum. Xil atliugunar. Ritstjórn Starfsmannablaðsins vill kappkosta að því, að gera blaðið eins eigulegt fyrir starfsmenn bæjarins og auðið er. Að því hnígur m. a. að blaðið vill birta sem mest af persónulegum fréttum og höfum vér í undanförnum blöðum sagt frá afmælis- og minningar- dögum eftir því sem oss var kunnugt. Nú er það alvarleg áskorun blaðsins til allra félaga í St. Rv. að þeir annað hvort sendi blaðinu línu um þessi efni eða geri ritstjórninni aðvart, er þeir vilja heiðra félaga sína á tyllidögum þeirra.------- Einmitt um það bil, er blaðið var að fara í pressuna, barst ristj. bréf frá áhugasamri félagskonu, sem birt er annars staðar í blaðinu. Hreyfir hún þar við mikið til sömu málum og rit- stjórnin hefir haft til athugunar lengi. Þakkar ritstjórnin allan sýndan áhuga — ekki sízt „okkar einlægu". En það verður að segjast í „allri einlægni“, að félagsmenn verða sjálfir að stuðla að því að gera blaðið íjölskrúðugt. Hins vegar mun ritstjórnin fúslega gera sitt. í næsta blaði verður m. a. rætt um jólatréskemmtun félagsins og verða uppástungur um skemmtanir fyrir fé- lagsmenn teknar til athugunar. Þá verð- ur í blaðinu allýtarleg grein eftir Jó- hann G. Möller um reglugjörðina. Að- sendar greinar þurfa að vera komnar til ritstjórnarinnar fyrir 20. okt. Ritstj.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.