Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Page 12

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.09.1940, Page 12
24 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR ,<kiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii11111111111111114, SJÓSÓKN — Brot úr kvœði — Myndir skírast, myrkrið flýr, minning býr í haginn. Öldur stýrir óður nýr út á dýra braginn. Fram um breiða báruleið burtu skreiðist nóttin. Sóknin greiðist, sól er heið, særinn freyðir undan skeið. Bylgjum gárast háttur hár, hljóðið klára er vakið: Hækkar bára, hrynur sjár, heyrist áratakið. IJt úr vörum flýtt er för, fest í hjörum stýri. Handtök gjörast snillisnör, snúa, — og öruggt skríður knör. Fleyin raðast ,,Ósnum“ að, út, og þaðan dreifast; sem fuglar hraði flugi er það, í fjaðrarstað hvert árarblað. Löðurfangið bátinn ber; beint er þangað róið, sem síli fangar fuglager, og fiskiganga komin er. Fögur liðast bylgjubrögð, bátur skriðinn hægir. Tekin miðin, lóðin lögð, léttist biðin, skrítla er sögð. Meðan lóðir liggja í sæ, og land í móðu vakir, konu, móður, börnum, bæ bera gróður hjartans fræ. Heima er það á helgum stað, I er hetjum kvaðir setur. — | i Með fleyin hlaðin flóðs um vað i fyrðar glaðir koma að. i = Maríus Ólafsson. í *>< iiiiiiiiiiiiiiiii.............................................................

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.