Bankablaðið - 18.09.1935, Page 18

Bankablaðið - 18.09.1935, Page 18
32 BANKABLAÐIÐ Siarfsmaður Landsbanka íslands skipaður aðalbankasijóri Búnaðarbanka íslands. Um síðustu múnaðamót var Hilmar Stefánsson, sem verið hefir útibússtjóri Landsbanka íslands að Sel- fossi um fimm ára skeið, skipaður aðalbankastjóri Búnaðarbanka íslands, frá 1-5. þ. m. að telja. Á meðan Hilmar hafði tækifæri til að vinna að fé- lagsmálum bankastarfs- manna, þau árin, sem hann starfaði í Landsbankanum í Reykjavík, var hann einn hinn duglegasti og átti mikinn þátt í stofnun Félags stárfsmanna Lands- banka íslands. Hann var fyrsti formað- ur starfsmannafélagsins, og var þá þeg- ar rætt um stofnun Samþands íslenzkra bankamanna, enda þótt svo langur drátt- ur yi ði á, að þetta kæmist í framkvæmd. í þau tæp 18 ár, sem Hilmar Stefáns- san var starfsmaður Landsbanka ís- lands, ávann hann sér traust og virðingu þeirra, er honum kynntust, ogmunóhætt að fullyrða, að allir starfsbræður óska honum allra heilla í hinni nýju stöðu. Um leið og starfsbræður Hilmars kveðja hann og óska honum og Búnaðar- bankanum til hamingju, þá ketur „Bankablaðið“ þá ósk cg von í ljós, að þessi embættk veiting verði upp- haf þess, að bankastjóra- stöður verði oftar en hing- að til skipaðar vönum og hæfum bankamönnum. Það er bankastarfsmönn- um óblandið gleðiefni, að í aðalbankastjórastöðuna skyldi valinn maður úr þeirra „hóp“. Starfsmenn Landsbanka íslands hafa hingað til ekki átt því láni að íagna, að koma til greina við val í bankastjóra- stöður. Það væri vel farið, ef skoða mætti þessa embættisveitingu sem vott þess, að í framtíðinni mættu bankastarfs- menn vænta þess, að þeir hefðu, að öðru jöfnu, eins góð skilyrði og aðrir menn til að hljóta beztu stöðurnar inn- an bankanna. Hilmar Stefánsson Verzlunin LIVERPOOL er stærsta og fullkomnasta matvöru- og nýlenduvöruverzlun hér á landi. Adorgro ára reynzla hefir kennf henni að haga jafnan innkaupum i fullu samræmi við kröfur hinna vandlátusfu viðskipfamanna.

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.