Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 4

Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 4
4 BANKABLAÐIÐ Guðmundur Loptsson bankafulltrúi 65 ára. GUÐMUNDUR LOPTSSON Guðmundur Loptsson, banka- fulltrúi, varð 65 ára þann 14. marz síðastliðinn. — Hann er sá maður, sem lengst hefir starfað við Landsbankann, kom þangað 1906 og á því 30 ára starfsafmæli á þessu ári. — Guðmundur er fæddur á Stað- arhóli í Siglufirði 14. marz 1871. 14 ára gamall fór hann að heim- an og stundaði allskonar vinnu, og var hugurinn allur, að komast til mennta, en auðvitað hafði hann ekkert annað en sína eigin vinnu til þess að komast áfram með. — Ungur gekk hann þó á Möðruvallaskólann, og síðan lauk hann og prófi á búnaðarskólan- um á Hólum. Gerðist hann um skeið kennari við Hólaskóla, en eftir það gekk hann á verzlunar- skóla í Kaupmannahöfn og lauk allsstaðar prófum með ágætum vitnisburðum. Síðan varð hann bókhaldari við verzlun, og þótti í báðum stöðunum hinn nýtasti maður. Árið 1906 var hann ráðinn starfsmað- ur Landsbankans. Hefir hann gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum, verið settur bankagjaldkeri, skipaður úti- bússtjóri á Eskifirði, skrifstofustjóri o. m. f 1., er nú fulltrúi í Veðdeild bank- ans. — Eg hygg, að enginn banka- maður hafi unnið svo alhliða starf sem Guðmundur, enda bankinn fámennur og lítill, er hann kom þangað, en nú orðinn stórbanki með fjölda starfs- manna og deilda. Eins og geta má nærri hefir Guð- mundur haft ýms önnur störf með höndum, jafnhliða sínu aðalstarfi, því að hann er mjög fjölhæfur maður og starfsglaður. Hann hefir verið settur sýslumaður, kennari við skóla hér, org- anisti og einn af fremstu mönnum Góðtemplara-reglunnar, enda er hann einlægur og trúr bindindismaður. En hann hefir þann góða kost fram yfir ýmsa aðra templara, að vera umburð- arlyndur og ofstækislaus; hann getur ætíð glaðst með glöðum, jafnvel þótt Bakkus gamli hafi lyft sumum upp úr drunganum. Hann hefir, þrátt fyrir sína lífsskoðun, sem er sú, að vín sé óhollt, getað skilið það, að hóflega drukkið vín gleður hjörtu, sem annars finna litla gleði í lífinu. Þótt Guðmundi

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.