Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 6

Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 6
6 BANKABLAÐIÐ Skuggar. I kvöld er hátíð bankamanna hald- in að „Hótel Borg“. — Eg sé í anda glæsilegan hóp prúðbúinna manna, heyri söng, hlátur og gleðilæti; ræð- ur eru fluttar — fögur orð — en tóm og tilgangslaus. Því yfir banka vorum hvílir dimm- ur, drungalegur skuggi, — skuggi tortrygni og gruns. Tugir heiðarlegra manna ganga hér daglega undir grun um glæpsamlegt athæfi gagnvart stofnun þeirri, er þeim er kær, og þeir vilja allt gott. — Bæði í alvöru og skopi erum vér nefndir „bankaþjóf- arnir“, — þeim seku væri það að vísu mátulegt, en hinum, sem saklausir eru, — og það eru vitanlega flestir eða allir, — hlýtur að svíða þetta sárt. Margir hafa unnið í bankanum tugi ára og ætíð haft hag stofnunar- innar jafnframt sínum eigin hag fyr- ir augum. Nú eru þessir menn einnig undir skugga grunsemdanna, — það eru launin fyrir dyggilegt æfistarf. — En hverjar eru nú orsakir þessa ó- fagnaðar? Vér verðum að gera oss það ljóst, til þess að fyrirbyggja end- urtekningar, eftir því sem mögulegt er. — Eg tel höfuðorsökina vera þá, að bankinn er ekki nógu vandur í vali á nýjum starfsmönnum, Og í Öðru lagi þá, að hann heldur ekki nógu fast í þá góðu starfsmenn, sem hann fser. — Að ráða bót á þessu er auðvitað ekki á valdi okkar, starfsmannanna, það er stjórn bankans, sem verður að gera það. En mér finnst ekki fjarri lagi að benda á þetta, því það er í vitund allra manna, sem til þekkja, að mjög oft hafa verið teknir menn í bankann, sem fyrirsjáanlega áttu aldrei þang- að að koma. Einnig hitt, að bankarnir hafa látið prýðilega starfsmenn fara vegna þess, að um lítilsháttar kaup- hækkun var að ræða. — Fyrir stofnanir eins og banka er auðvelt að velja úr fólki. Það verður að vísu ekki komizt hjá því, að stöku sinnum slæðist „svartur sauður“ inn, en það er auðvelt að losna strax við slíkt fólk, ef hinir ráðandi menn hafa augun opin og láta engar persónuleg- ar hvatir ráða gerðum sínum. — Það, sem allt ríður á, er að starfsmenn séu heiðarlegir og áhugasamir um störf sín og þyki vænt um stofnunina, sem þeir vinna í, að hinn lægsti að metorðum finni það, að starf hans er í því smáa, jafn áríðandi eins og starf hins æðsta yfirboðara er honum, í því stóra. Og að menn finna það ávallt, að vel unnið starf er launað að verðleik- um, bæði með orðum og athöfnum. — En á þessu hefir, því miður, oft orðið allmiklir misbrestir — og það alveg að óþörfu. Þeir skuggar, sem nú hvíla yfir okk- ur, þurfa og verða að hverfa. Vér verð- um aftur að vera frjálst fólk, sem nýt- ur fulls trausts bæði innan banka og utan. Það er skylda þeirra, er bönkunum stjórna, að kippa þessu í lag, skylda gagnvart trúum þjónum, stofnununum og allri þjóðinni. 21. marz 1936. Landsbankamaður.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.